Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur



Hlekkir

Finna

Algengar spurningar

Algengar spurningar


Ef þú ert með spurningu um samkeppnismál geturðu beint henni til Samkeppniseftirlitsins með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan. Farið verður yfir allar fyrirspurnir og reynt að svara þeim ef þær falla að verkefnasviði stofnunarinnar. Ætlunin er að byggja upp gagnabanka um samkeppnismál, og eru allir sem hafa áhuga á þessum málaflokki hvattir til að beina fyrirspurnum sínum til Samkeppniseftirlitsins um þessa gátt. Ekki er hægt að ábyrgjast hvenær eða hvort fyrirspurn verður svarað en ef tölvupóstfang fylgir fyrirspurn mun fyrirspyrjandi fá svar sent í tölvupósti þegar það birtist á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.





Fréttir






 Nýjustu ákvarðanir SE

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 60/2008

10. desember 2008



Þann 4. september 2008 barst Samkeppniseftirlitinu samrunatilkynning vegna kaupa Bílaumboðsins Öskju ehf. (Öskju) á lausafé (aðallega velum og tækjum) af Ræsi hf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt.

Viðræður við samrunaaðila hafa leitt til þess að Askja hefur gengist undir sátt í málinu á grundvelli samkeppnislaga og reglna um málsmeðferð samkeppnisyfirvalda. Sáttin felur í sér skilyrði sem eru að mati Samkeppniseftirlitsins til þess fallin að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem ella hefðu skapast með kaupunum. Skilyrðin fela það í sér að Öskju er skylt að veita öllum eigendum Mercedes-Benz bifreiða hér á landi viðgerðar- og varahlutaþjónustu óháð því hvar viðkomandi bifreiðar hafa verið keyptar eða hvernig þær voru fluttar til landsins. Einnig er Öskju óheimilt að synja þeim sem þess óska um kaup á varahlutum og viðgerðarþjónustu nema ríkar málefnalegar ástæður séu forsenda sölusynjunarinnar. Þá er Öskju óheimilt við sölu á viðgerðar- og varahlutaþjónustu að láta eigendur eða umráðamenn þeirra Mercedes-Benz bifreiða sem félagið hefur sjálft flutt inn (og/eða áður Ræsir) njóta annars verðs eða betri viðskiptakjara en aðrir viðskiptavinir myndu njóta í sams konar viðskiptum. Ákvörðun


 





Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is