Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur



Hlekkir

Finna

Algengar spurningar

Algengar spurningar


Ef þú ert með spurningu um samkeppnismál geturðu beint henni til Samkeppniseftirlitsins með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan. Farið verður yfir allar fyrirspurnir og reynt að svara þeim ef þær falla að verkefnasviði stofnunarinnar. Ætlunin er að byggja upp gagnabanka um samkeppnismál, og eru allir sem hafa áhuga á þessum málaflokki hvattir til að beina fyrirspurnum sínum til Samkeppniseftirlitsins um þessa gátt. Ekki er hægt að ábyrgjast hvenær eða hvort fyrirspurn verður svarað en ef tölvupóstfang fylgir fyrirspurn mun fyrirspyrjandi fá svar sent í tölvupósti þegar það birtist á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.





Fréttir






 Nýjustu ákvarðanir SE

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 63/2008

18. desember 2008



Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá S10 ehf. Í erindinu var þess krafist að Samkeppniseftirlitið kvæði annars vegar á um að Matís ohf. yrði gert að fresta framkvæmd útboðs vegna leigu á fullbúnu skrifstofu- og þjónustuhúsnæði og hins vegar að kveðið yrði á um fjárhagslegan aðskilnað á milli þess hluta rekstrar Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. sem er í frjálsri samkeppni við einkaaðila og þess hluta rekstrar sem nýtur skjóls eða verndar á grundvelli þess sambands sem sé á milli Háskóla Íslands og Vísindagarða, sbr. 14. gr. samkeppnislaga. Óskað var eftir því að Samkeppniseftirlitið tæki bráðabirgðaákvörðun í málinu. Að mati Samkeppniseftirlitsins voru ekki fyrir hendi skilyrði til töku bráðabirgðaákvörðunar í málinu. Af gögnum málsins er að mati Samkeppniseftirlitsins ljóst að um bókhaldslegan aðskilnað er að ræða á milli Vísindagarða, sem stunda rekstur sem er í samkeppni við einkaaðila, og Háskóla Íslands, sem nýtur opinberra fjárframlaga. Þó ljóst þyki að Vísindagarðar séu í dag fjárhagslega aðskildir frá Háskóla Íslands þykir Samkeppniseftirlitinu rétt að mæla fyrir um þá skyldu með vísan til samkeppnislaga og beina tilteknum fyrirmælum til Vísindagarða. Er því m.a. beint til Vísindagarða að það fjármagn sem Háskóli Íslands hefur lagt fram til Vísindagarða verði gert að hlutfé í félaginu þegar það hefur rekstur. Þá skal farið með öll viðskipti á milli Vísindagarða og Háskóla Íslands líkt og um óskylda aðila sé að ræða og skal greiða markaðsverð fyrir vörur og þjónustu sem annar aðilinn selur hinum. Í því sambandi er því beint til Vísindagarða að færa árlega til gjalda og greiða markaðsvexti af skuldum Vísindagarða við Háskóla Íslands samkvæmt mati löggilts endurskoðanda. Ákvörðun




Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is