Samkeppniseftirlitið tekur annars vegar þátt í samstarfi á grundvelli EES samningsins og hins vegar í samstarfi evrópskra samkeppnisyfirvalda:
-
Samstarf á grundvelli EES samningsins:
- Fundir í ráðgjafarnefndum EB um samkeppnismál og samruna eru haldnir á vegum framkvæmdastjórnar EB (EU Competition Advisory Committee / EU Mergers Advisory Committee) og hefur Samkeppniseftirlitið áheyrnarfulltrúa þar. Samskonar fundir eru haldnir í ráðgjafarnefndum ESA og hefur Samkeppniseftirlitið fulla aðild á þeim fundum.-Samkeppniseftirlitið tekur þátt í samstarfi á vegum European Competition Network (ECN), en í því felst samstarf samkeppnisyfivalda aðildarríkja EB, EFTA, ESA og framkvæmdastjórnarinnar. Markmið þess samstarfs er að fara yfir einstök samkeppnismál sem til umfjöllunar eru hverju sinni hjá samkeppnisyfirvöldum EB auk almennrar samkeppnisstefnumótunar. Í því skyni hafa verið settir á laggirnar allmargir vinnuhópar sem fjalla um einstök svið samkeppnismála. Má þar t.d. nefna vinnuhóp um misnotkun á markaðsráðandi stöðu, vinnuhóp um samrunamál, vinnuhóp um orkumál auk vinnuhóps um fjarskiptamarkað.
-Samkeppniseftirlitið tekur þátt í fundum í vinnuhópi EFTA um samkeppnismál. Sá hópur tekur til skoðunar alla nýja löggjöf EB um samkeppnismál og metur hvort hún verði hluti af EES-samningnum eða ekki og þá hvort aðlaga þurfi nýja löggjöf að EES samningnum. www.efta.int
-Forstjórar samkeppniseftirlita eru boðaðir til fundar einu sinni á ári af framkvæmdastjórn EB. Samkeppniseftirlitið hefur sótt þessa fundi.
- Samstarf samkeppnisyfirvalda ESB og EFTA (European Competition Authorities). Um er að ræða óformlegt samstarf þar sem m.a. er farið yfir framkvæmd samkeppnisreglna og stefnumótun. Til að skoða einstaka samkeppnismarkaði eða samkeppnisálitaefni hafa verið stofnaðir vinnuhópar, en innan þess samstarfs eru starfandi vinnuhópar um samkeppnismál s.s. samrunavinnuhópur, vinnuhópur um orkumál, vinnuhópur um fjölmiðla, vinnuhópur um sakaruppgjöf o.fl.
Heimasíða ECA












