Samkeppnisyfirvöld Íslands, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands, Færeyja og Grænlands hafa reglubundið samstarf sín á milli.
Á reglulegum fundum hinna norrænu samkeppnisyfirvalda er fjallað um samkeppnismál á almennum grundvelli, breytingar á lögum og reglum og einstök mál, ákvarðanir og dóma, sem hafa almenna skírskotun. Þá er ennfremur fjallað um rekstur samkeppniseftirlitanna, málshraða og árangur.
Vinnuhópar eru starfandi á tilteknum sviðum auk þess sem árlega hefur verið unnið að sértækum verkefnum í vinnuhópum sem hafa birt niðurstöður vinnu sinnar í skýrslum sem norrænu samkeppnisyfirvöldin gefa út. Dæmi um slíkar skýrslur er skýrsla um samkeppni á norrænum matvörumörkuðum sem gefin var út í desember 2005.
Þá er í gildi samningur (PDF) milli Danmerkur, Íslands og Noregs um samstarf í samkeppnismálum.
Samningur (PDF) um breytingu á og aðild Svíþjóðar að samningnum milli Danmerkur, Íslands og Noregs um samstarf í samkeppnismálum












