Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Samkeppniseftirlitið - Fréttir

Hlekkir

Finna

Fréttir

Fréttir


Kæra Símans á ekki við rök að styðjast

27. apríl 2010



Í fjölmiðlum í dag er greint frá því að Síminn hafi stefnt Samkeppniseftirlitinu fyrir héraðsdóm og krefjist þess að öllum gögnum sem aflað var í húsleit hjá Símanum verði eytt, þar sem starfsmenn keppinautar Símans hafi annast afritatöku.  Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka fram eftirfarandi:

Eins og fram er komið opinberlega framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Símanum og öðrum fyrirtækjum í sömu samstæðu, þann 21. apríl sl.  Húsleitin var viðamikil enda þurfti eftirlitið að afrita og leita gagna á nokkrum stöðum í húsnæði fyrirtækjanna. Samkeppniseftirlitið þurfti því að fá til liðs við sig nokkra einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til að aðstoða við aðgerðina og leitaði til Þekkingar í því skyni. Umræddir einstaklingar voru starfsmenn Samkeppniseftirlitsins á vettvangi og störfuðu samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess.

Öll aðgerðin fór fram undir stjórn Samkeppniseftirlitsins og þau gögn sem haldlögð voru og afrituð eru vistuð með öruggum hætti hjá Samkeppniseftirlitinu.  Umræddir einstaklingar komu hvergi nærri haldlagningu gagna eða efnislegri skoðun tölvugagna heldur fólst hlutverk þeirra einvörðungu í tæknilegri aðstoð við afritun gagna. Málatilbúnaður Símans á því ekki við rök að styðjast.

Með hliðsjón af framangreindu kemur kæra Símans og krafa um eyðingu húsleitargagna á óvart, ekki síst í ljósi þess að Síminn lýsti því opinberlega yfir að fyrirtækið myndi vinna með Samkeppniseftirlitinu við öflun gagna og rannsókn á þeim.





Nýjustu ákvarðanir álit



    Nýjustur úrskurðir áfrýjunarnefndar



    Tenglar




Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is