Nr. 890 / 2005 Reglur samkeppniseftirlitsins um atvik sem leiða til niðufellingar sekta eða ákvarðana um að lækka sektir í málum er varða ólögmætt samráð fyrirtækja
REGLUR
Samkeppniseftirlitsins um atvik sem leiða til niðurfellingar sekta eða ákvarðana um að lækka sektir í málum er varða ólögmætt samráð fyrirtækja.
I. KAFLI
Sekt felld niður.
1. gr.
Samkeppniseftirlitið mun fella niður sekt á fyrirtæki sem annars hefði verið sektað ef:
- fyrirtæki er fyrst til að láta Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem að þeirra mati geta leitt til rannsóknar á meintu ólögmætu samráði á grundvelli 20. gr. samkeppnislaga eða
- fyrirtæki er fyrst til að láta Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem að þeirra mati gerir þeim kleift að sanna brot gegn 10. gr. eða 12. gr. samkeppnislaga.
2. gr.
Niðurfelling á sekt á grundvelli a-liðar 1. gr. verður eingöngu veitt ef Samkeppniseftirlitið, hefur ekki undir höndum fullnægjandi sönnunargögn til að hefja rannsókn á grundvelli 20. gr. samkeppnislaga þegar sönnunargögn eru lögð fram.
Niðurfelling á sekt á grundvelli b-liðar 1. gr. verður eingöngu veitt ef Samkeppniseftirlitið hefur ekki fullnægjandi sönnunargögn til að sanna hið ólögmæta samráð, sbr. 10. gr. eða 12. gr. samkeppnislaga, og ekkert fyrirtæki hefur hlotið niðurfellingu á sektum á grund¬velli a-liðar 1. gr. þegar sönnunargögn eru lögð fram.
3. gr.
Auk skilyrðanna í a-lið 1. gr. og 1. mgr. 2. gr. eða b-lið 1. gr. og 2. mgr. 2. gr. verður fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) það verður að sýna fullan samstarfsvilja meðan á rannsókn málsins stendur og láta Sam keppniseftirlitinu í té öll sönnunargögn og allar upplýsingar sem það býr yfir í tengslum við meint samkeppnislagabrot á meðan á rannsókn málsins stendur.
b) það verður að hætta þátttöku sinni í hinu meinta samkeppnislagabroti eigi síðar en þegar það kemur upp um hið ólögmæta samráð.
c) það má ekki hafa þvingað önnur fyrirtæki til þátttöku í hinu ólögmæta samráði.
4. gr.
Fyrirtæki sem óskar eftir niðurfellingu á sekt á grundvelli þessara reglna, skal hafa samband við Samkeppniseftirlitið. Verði það augljóst að skilyrði 1.-3. gr. eru ekki uppfyllt, mun Samkeppniseftirlitið skýra fyrirtækinu frá því án tafar að því standi niðurfelling á sekt ekki til boða vegna meints brots.
5. gr.
Uppfylli fyrirtæki skilyrðin í a-lið 1. gr. eða b-lið 1. gr. og geti þar af leiðandi fengið niðurfellingu á sekt skal fyrirtækið:
a) án tafar láta Samkeppniseftirlitinu í té öll sönnunargögn sem fyrirtækið býr yfir og varða
meint ólögmætt samráð eða
b) byrja á því að kynna fyrir Samkeppniseftirlitinu upplýsingar um sönnunargögnin sem fyrirtækið hyggst leggja fram síðar, á tilteknum degi. Með upplýsingunum skal fylgja listi sem lýsir þeim sönnunargögnum sem fyrirtækið býr yfir og hyggst afhenda eftirlitinu. Á listanum ber fyrirtækinu að gera grein fyrir eðli og innihaldi sönnunargagnanna. Fyrirtækið getur kynnt Samkeppniseftirlitinu afrit af gögnum þar sem viðkvæmar upp¬lýsingar hafa verið fjarlægðar en sýna samt sem áður fram á eðli og innihald gagnanna.
6. gr.
Samkeppniseftirlitið mun afhenda fyrirtæki sem óskar eftir niðurfellingu á sekt, skriflega yfirlýsingu þar sem fram kemur hvenær fyrirtækið annaðhvort lét Samkeppniseftirlitinu í té upplýsingar og sönnunargögn, sbr. a-lið 5. gr. eða kynnti fyrir Samkeppniseftirlitinu lista með lýsingu á sönnunargögnum, sbr. b-lið 5. gr.
7. gr.
Þegar Samkeppniseftirlitið hefur fengið í hendur sönnunargögn sem fyrirtæki lætur eftirlitinu í té á grundvelli a-liðar 5. gr. og Samkeppniseftirlitið hefur staðreynt að fyrirtækið uppfyllir skilyrðin í a-lið 1. gr. eða b-lið 1. gr., tilkynnir Samkeppniseftirlitið skriflega að fyrirtækið muni, að uppfylltum skilyrðum, fá hugsanlega sekt fellda niður.
8. gr.
Ef fyrirtæki velur að fara þá leið sem lýst er í b-lið 5. gr. mun Samkeppniseftirlitið staðreyna að eðli og innihald sönnunargagna, sem fram koma á lista með lýsingu á sönnunargögnum sem fyrirtækið leggur fram, fullnægi skilyrðunum í a-lið 1. gr. eða b-lið 1. gr. og tilkynna fyrirtækinu um niðurstöðu sína. Þegar fyrirtæki hefur á tilskildum tíma lagt fram þau sönnunargögn sem um er fjallað í lista með lýsingu á sönnunargögnum, sbr. b-lið 5. gr., og Samkeppniseftirlitið hefur staðreynt að gögnin séu í samræmi við lýsinguna tilkynnir eftirlitið skriflega að fyrirtækið muni, að uppfylltum skilyrðum, fá hugsanlega sekt fellda niður.
9. gr.
Fyrirtæki sem uppfyllir ekki skilyrðin í a-lið 1. gr. eða b-lið 1. gr. má draga til baka sönnunargögnin sem það lagði fram eða óska eftir að Samkeppniseftirlitið skoði þau með tilliti til lækkunar á sekt, sbr. II. kafli reglnanna. Þetta kemur ekki í veg fyrir að Samkeppniseftirlitið beiti rannsóknarúrræðum samkvæmt samkeppnislögum til að afla umræddra gagna.
10. gr.
Samkeppniseftirlitið mun ekki taka til skoðunar beiðni fyrirtækis um niðurfellingu á sekt fyrr en afstaða hefur verið tekin til beiðni sem þegar liggur fyrir vegna sama meinta brots á samkeppnislögum.
11. gr.
Ef fyrirtæki hefur uppfyllt öll skilyrði sem sett eru fram í 5. gr. við lok málsmeðferðar mun Samkeppniseftirlitið fella niður sekt í ákvörðun sinni í málinu.
II. KAFLI
Lækkun á sekt.
12. gr.
Fyrirtæki sem uppfyllir ekki skilyrðin sem sett eru fram í I. kafla reglnanna getur engu að síður uppfyllt skilyrði til að fá fjárhæð sektar lækkaða í máli sem varðar ólögmætt samráð fyrirtækja.
13. gr.
Til þess að njóta lækkunar sektar verður fyrirtækið að láta Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem að mati eftirlitsins eru mikilvæg viðbót við þau sönnunargögn sem það hefur þegar í fórum sínum. Þá verður fyrirtækið einnig að hætta þátttöku sinni í hinu meinta ólögmæta samráði.
14. gr.
Hugtakið „mikilvæg viðbót“ vísar til þess að hve miklu leyti sönnunargögn þau sem fyrirtækið lætur Samkeppniseftirlitinu í té, með tilliti til eðlis gagnanna og nákvæmni, hjálpa til við að upplýsa staðreyndir málsins. Samkeppniseftirlitið mun almennt séð líta svo á að skrifleg sönnunargögn sem stafa frá þeim tíma er meint brot áttu sér stað hafi ríkari gildi heldur en gögn eða upplýsingar sem koma til síðar. Jafnframt hafa bein sönnunargögn meiri þýðingu heldur en þau sem tengjast málinu með óbeinum hætti.
15. gr.
Samkeppniseftirlitið mun í ákvörðun sinni skera úr um hvort sönnunargögn sem fyrirtækið lét í té hafi á þeim tímapunkti er það gerðist haft verulega þýðingu með tilliti til þeirra sönnunargagna sem þá lágu þegar fyrir.
16. gr.
Uppfylli fyrirtæki skilyrðin fyrir lækkun sektar mun sektin lækka eftir neðangreindum reglum:
(i) fyrsta fyrirtækið sem uppfyllir skilyrðin fyrir lækkun sektar getur fengið sektarupphæðina lækkaða um 30 til 50%,
(ii) annað fyrirtækið sem uppfyllir skilyrðin fyrir lækkun sektar getur fengið sektarupphæðina lækkaða um 20 til 30%,
(iii) önnur fyrirtæki sem á eftir koma og uppfylla skilyrðin fyrir lækkun sektar geta fengið allt að 20% lækkun á sektarupphæðinni.
17. gr.
Þegar metið er hversu mikla lækkun á sektarfjárhæðinni fyrirtæki hlýtur er tekið tillit til þess á hvaða tímapunkti fyrirtækið lagði fram sönnunargögnin og hversu mikla þýðingu þau höfðu fyrir rannsókn málsins. Einnig hefur Samkeppniseftirlitið hliðsjón af samstarfsvilja fyrirtækisins eftir að það lagði fram sönnunargögnin.
18. gr.
Ef fyrirtæki lætur Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem varpa ljósi á áður óþekktar staðreyndir í málinu og hafa beina þýðingu varðandi mat á alvarleika hins meinta ólögmæta samráðs og hversu lengi það hefur varað þá mun Samkeppniseftirlitið ekki nota þær upplýsingar til að hækka sektina hjá viðkomandi fyrirtæki.
19. gr.
Fyrirtæki sem óskar eftir lækkun á sektarfjárhæð á grundvelli þessara reglna verður að láta Samkeppniseftirlitinu í té skrifleg sönnunargögn og upplýsingar sem geta sannað hið ólögmæta samráð sem fyrirtækið hefur verið þátttakandi í.
20. gr.
Fyrirtæki fær skriflega staðfestingu frá Samkeppniseftirlitinu þar sem fram kemur hvenær gögn eða upplýsingar sem fyrirtæki miðlar til eftirlitsins bárust því. Samkeppniseftirlitið mun ekki taka til skoðunar beiðni fyrirtækis um lækkun sektar samkvæmt þessum reglum fyrr en beiðnir sem þegar liggja fyrir hjá eftirlitinu og varða sama meinta brot á samkeppnislögum, hafa verið afgreiddar.
21. gr.
Ef Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að upplýsingar og sönnunargögn sem fyrirtæki lætur í té séu mikilvæg viðbót við þau sönnunargögn sem þegar liggja fyrir mun fyrirtækinu vera skýrt skriflega frá þeirri niðurstöðu að til standi að lækka fjárhæð sektar sem hugsanlega verður lögð á fyrirtækið. Samkeppniseftirlitið mun tilkynna fyrirtækinu um þessa ákvörðun eigi síðar en þegar andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins verður birt málsaðilum.
III. KAFLI
Almenn ákvæði.
22. gr.
Aðeins þeir aðilar sem hafa umboð til að koma fram fyrir hönd fyrirtækis í því skyni sem um ræðir í reglum þessum er heimilt að leita til Samkeppniseftirlitsins vegna hugsanlegs samstarfs til niðurfellingar sektar eða lækkunar sektar. Þessar reglur taka því ekki til beiðna frá einstökum starfsmönnum fyrirtækis.
23. gr.
Komi í ljós að fyrirtæki uppfylli ekki skilyrðin sem sett eru fram í I. og II. kafla reglnanna á hvaða stigi málsmeðferðar sem er, mun það leiða til þess að hætt verður við þá ívilnandi sektarmeðferð sem þar er kveðið á um.
24. gr.
Samstarfsvilji fyrirtækja er eingöngu einn þáttur af mörgum sem Samkeppniseftirlitinu er heimilt að líta til við mat á sektum. Þessar reglur takmarka ekki heimildir Samkeppniseftirlitsins til að lækka sektir af öðrum ástæðum.
25. gr.
Það að fyrirtæki njóta ívilnunar við ákvörðun sekta veitir þeim ekki einkaréttarlega vernd vegna aðildar að ólögmætu samráði. Ef upplýsingar sem fyrirtækið lætur í té leiða til þess að Samkeppniseftirlitið tekur íþyngjandi ákvörðun verður fyrirtækið sem nýtur niðurfellingar eða lækkunar á sekt einnig tilgreint í þeirri ákvörðun og þess getið að það hafi brotið gegn samkeppnislögum og hlutverki þess lýst nákvæmlega. Sú staðreynd að fyrirtækið starfaði með Samkeppniseftirlitinu verður einnig nefnd í ákvörðuninni til að útskýra hvers vegna sekt var ekki lögð á eða hún lækkuð.
IV. KAFLI
Gildistaka.
26. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 8. gr., sbr. 2. mgr. 37. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 397/2002.
Samkeppniseftirlitinu, 27. september 2005.
Páll Gunnar Pálsson.












