Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Lög og reglur - Starfsreglur stjórnar Samkeppniseftirlitsins

Hlekkir

Finna

Starfsreglur stjórnar Samkeppniseftirlitsins

Starfsreglur stjórnar Samkeppniseftirlitsins


 Nr. 759 /2005 Starfsreglur stjórnar Samkeppniseftirlitsins 


STARFSREGLUR
stjórnar Samkeppniseftirlitsins.


1. gr.
Verkaskipting stjórnar og forstjóra.
Stjórn Samkeppniseftirlitsins fer með yfirstjórn stofnunarinnar. Stjórnin er hluti af innra skipulagi stofnunarinnar og kemur ekki fram sem sjálfstæður aðili. Stjórnin fjallar um þau málefni sem greinir í reglum þessum.
Forstjóri ber ábyrgð gagnvart stjórninni, kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar, annast daglega stjórn á starfsemi og rekstri hennar og tekur ákvarðanir fyrir hönd hennar. Aðstoðarforstjóri er staðgengill forstjóra.

2. gr.
Mótun áherslna og eftirlit með starfsemi.
Stjórnin mótar áherslur í starfi og skipulagi Samkeppniseftirlitsins og staðfestir skipurit fyrir stofnunina.
Stjórnin fylgist með starfsemi og verkefnum stofnunarinnar. Skal forstjóri gæta þess að stjórnin sé á hverjum tíma upplýst um helstu þætti í starfsemi stofnunarinnar. Verkáætlanir sem gerðar skulu fyrir hvert ár eru kynntar í stjórn.
Ársskýrslur Samkeppniseftirlitsins skulu kynntar stjórninni áður en þær eru birtar.


3. gr.
Meiri háttar efnislegar ákvarðanir.
Meiri háttar efnislegar ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins skal bera undir stjórnina til samþykktar eða synjunar. Eftirtaldar ákvarðanir teljast meiri háttar:

  • Ákvarðanir í málum þar sem um er að ræða ólögmætt samráð fyrirtækja á sama sölustigi, eða samtaka þeirra, um verð og önnur viðskiptakjör, upplýsingaskipti um atriði sem tengjast verðlagningu, takmörkun eða stýringu á framleiðslu eða sölu, skiptingu á mörkuðum og gerð tilboða í útboðum, sbr. 10. og 12. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og eftir atvikum 53. gr. EES-samningsins. Hið sama gildir um aðgerðir á grundvelli 16. og 37. gr. samkeppnislaga vegna slíkra brota.
  • Ákvarðanir í málum þar sem um er að ræða ólögmætt samráð fyrirtækja á mismunandi sölustigum um endursöluverð, sbr. 10. og 12. gr. samkeppnislaga og eftir atvikum 53. gr. EES-samningsins. Hið sama gildir um aðgerðir á grundvelli 16. og 37. gr. samkeppnislaga vegna slíkra brota.
  • Ákvarðanir í málum þar sem um er að ræða misnotkun á markaðsráðandi stöðu þar sem velta hins brotlega fyrirtækis á síðastliðnu almanaksári er meiri en 1.000 milljónir króna, sbr. 11. gr. samkeppnislaga og eftir atvikum 54. gr. EES-samningsins. Hið sama gildir um aðgerðir á grundvelli 16. og 37. gr. samkeppnislaga vegna slíkra brota.
  • Ákvarðanir í málum þar sem um er að ræða íhlutun vegna samruna fyrirtækja skv. 17. gr. samkeppnislaga. Hið sama gildir um ákvörðun um að hafast ekki að vegna samruna fyrirtækja sem starfa á sama markaði og hafa samanlagt 50% markaðshlutdeild eða meira.
Bráðabirgðaákvarðanir samkvæmt samkeppnislögum teljast ekki til meiri háttar ákvarðana skv. 1. mgr.

4. gr.
Rekstraráætlun og eftirlit með rekstri.
Stjórnin fylgist með rekstri stofnunarinnar. Forstjóri leggur fyrir stjórn tillögu um rekstraráætlun stofnunarinnar fyrir næsta rekstrarár og annast samskipti við ráðuneyti og fjárveitingavald vegna fjárveitinga til stofnunarinnar. Forstjóri skal gera stjórn grein fyrir rekstrarstöðu stofnunarinnar eigi sjaldnar en ársfjórðungslega.

5. gr.
Hæfi stjórnarmanns.
Þegar stjórnarmaður telst vanhæfur samkvæmt 4. mgr. 7. gr. samkeppnislaga eða 3. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, skal varamaður taka sæti hans. Tekur viðkomandi stjórnarmaður þá ekki þátt í undirbúningi, meðferð eða ákvörðun í hinu tiltekna máli og tekur varamaður sæti í hans stað.
 
Stjórnarmenn skulu í hvívetna gæta að hæfi sínu við umfjöllun einstakra mála. Telji forstjóri eða formaður stjórnar að stjórnarmaður sé vanhæfur til þess að taka þátt í umfjöllun máls er þeim heimilt að krefjast þess að hann víki sæti áður en efni málsins er kynnt.
Nú er forstjóri vanhæfur til meðferðar máls og skal þá stjórn ákveða hvernig með skuli fara.
Um hæfi stjórnarmanns fer að öðru leyti eftir stjórnsýslulögum.

6. gr.
Stjórnarfundir.
Stjórnarfundir skulu haldnir að jafnaði mánaðarlega eða oftar þegar ástæða er til. Varamönnum er heimilt að sitja fundi stjórnar.
Stjórn er bær til þess að taka ákvarðanir ef tveir stjórnarmanna sitja fund eða varamenn í forföllum þeirra. Nú þolir ákvörðun ekki bið og ráðrúm gefst ekki til að boða til fundar og er þá heimilt að óska staðfestingar meiri hluta stjórnar utan fundar.

Fundargögn skal að jafnaði senda til stjórnarmanna a.m.k. degi fyrir stjórnarfund.
Bóka skal fundargerðir á stjórnarfundum, sem undirritaðar skulu af stjórnarmönnum. Í fundargerð skal koma fram hverjir sitja fundi, umfjöllunarefni á stjórnarfundum, ákvarðanir sem teknar eru og upplýsingar sem nauðsynlegt er að fram komi vegna ákvörðunar. Í fundargerð skal tilgreina þau gögn sem lögð eru fram á fundinum.

7. gr.
Þagnarskylda.
Þeim sem sitja stjórnarfund og þeim sem hafa aðgang að fundargögnum er óheimilt að skýra frá þeim atriðum sem þeir verða áskynja um og leynt eiga að fara. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

8. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglur þessar eru settar með stoð í 3. mgr. 5. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og öðlast gildi þegar í stað.
Samkeppniseftirlitinu, 25. júlí 2005,
Gylfi Magnússon,
formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins.









Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is