Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta



Hlekkir


Finna


Fréttabréf




 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar

Letur tól

Breyta leturþyngd

Stærra letur Minna letur

Breyta leturstærð

Stækka letur Minnka letur



Öflug uppbygging - opnun markaða og efling atvinnustarfsemi

Skýrslan á html sniðmáti      Sækja alla skýrsluna á PDF sniðmáti (uppfærð skýrsla gefin út 25. júní)

Translation of selected chapters of report No. 2/2008, Vigorous development – the
opening of markets and strengthening of economic activities

Aðgerðir í framhaldi af skýrslu - sjá fréttatilkynningu

Sendið okkur ábendingu eða athugasemd

Öflug uppbygging vegna efnahagsörðugleika

Viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið hrinda af stað vinnu við opnun samkeppnismarkaða og eflingu atvinnulífs

  • Brýnt er að hefja öfluga uppbyggingu í íslensku atvinnulífi.
  • Reynslan af efnahagskreppum sýnir að aðgerðir til þess að viðhalda og efla samkeppni stuðla að hraðari endurreisn atvinnulífsins.
  • Samkeppniseftirlitið birtir í dag ítarlega skýrslu um opnun markaða og eflingu atvinnustarfsemi og samkeppni.
  • Tryggja verður faglegt og gagnsætt ferli við ákvarðanir bankanna og að þær verði málefnalegar og stuðli eins og mögulegt er að aukinni samkeppni og fjölbreytni í atvinnulífinu.
  • Samkeppniseftirlitið vinnur að skýrslu um eignatengsl í íslensku atvinnulífi, lærdóm sem hægt er að draga af þeim og lausnir til úrbóta.



 

 Markaður / Viðfangsefni 

 Viðfangsefni - hindranir

   

 Lausnir - tilögur um opnun markaða 

Vísun í skýrslu  

Aðgerðir stjórnvalda - Skipulagsmál og samkeppni
  • Sveitarfélög hafa sjaldnast mótað skýra stefnu um áhrif skipulags á samkeppni.
  • Sveitarfélög hafa oft frumkvæði að því að velja stóra keppinauta til að hefja verslunarrekstur, á kostnað minni keppinauta.
  • Óvissa í skipulagi grunnaðstöðu, t.d. flugvallaraðstöðu, veikir samkeppni.
  • Dæmi eru um tregðu við úthlutun lóða til smærri keppinauta, t.d. á olíumarkaði.
  • Dæmi er um að stærri fyrirtæki hafi tryggt sér úthlutun á lóð og haldið henni án framkvæmda.
  • Kvaðir eru oft á lóðum um að óheimilt sé að starfrækja tiltekna starfsemi.
  • Kvaðir eru stundum á lóðum sem gera innkomu nýrra fyrirtækja erfiða, t.d. kvaðir í Grafarvogi og Grafarholti um matvöruverslanir.
  • Dæmi eru um aukakvaðir á lóðum sem gera smærri fyrirtækjum erfiðra fyrir, t.d. skylda til að byggja skrifstofuhúsnæði á sömu lóð og matvöruverslun.
   
  • Áskilið sé í skipulagslöggjöf að samkeppnissjónarmið hafi vægi í ákvörðunum.
  • Skipulagáætlanir taki mið af langtímaáhrifum á samkeppni.
  • Sveitarfélögum verði skylt að framkvæma samkeppnispróf við gerð deiliskipulags, til að meta núverandi eða mögulega samkeppni á helstu vöru- eða þjónustumörkuðum.
  • Lóðum sé úthlutað með útboði, þegar kostur er.
  • Við úthlutun lóða hafi nýir keppinautar á markaði forgang.
  • lóðaskilmálum sé óheimilt að selja lóðarréttindi án samþykkis sveitarfélags.
  • Sveitarfélög beiti sér fyrir því að ekki séu settar samkeppnislega takmarkandi kvaðir á lóðir.
  • Í lóðaskilmálum sé tryggt að aðilar geti ekki haldið lóðarréttindum án framkvæmda nema í tiltekinn tíma.
bls. 40 og áfram





 





Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is