Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur



Hlekkir

Finna

Ólögmætt samráð

Ólögmætt samráð


Ákvæði 10. gr. samkeppnislaga banna hverskonar samkeppnishamlandi samstarf milli fyrirtækja. Um getur verið að ræða t.d. eftirfarandi samráð fyrirtækja:
  • Um verð eða verðlag, álagningu, afslætti eða önnur viðskiptakjör.
  • Um takmörkun eða stýringu á framleiðslu.
  • Við tilboðsgerð þegar verkefni, vörukaup eða þjónusta hefur verið boðin út.
  • Um að skipta með sér mörkuðum, eftir t.d. viðskiptavinum eða landsvæðum.
  • Um bindandi endursöluverð á vöru eða þjónustu.
Leynilegt, ólögmætt samráð keppinauta er alvarlegasta brotið á samkeppnislögum þar sem það getur haft mjög skaðleg áhrif á samkeppni og þar með rýrt lífskjör almennings. Slíkt samráð fyrirtækja leiðir nær undantekningalaust til hærra verðs en ella. Rannsóknir sem greint hefur verið frá á vettvangi Efnahags- og framfarastofnunarinnar -OECD- sýna að meðaltalsávinningur fyrirtækja sem taka þátt í ólöglegu verðsamráði nemi 10% af söluverði vöru eða þjónustu. Skaði þjóðfélagsins í slíkum tilvikum er hins vegar mun meiri og kann að nema 20% af umfangi þeirra viðskipta sem samráðið nær til. Nýrri rannsóknir benda til þess að skaðinn sé jafnvel enn meiri. Með öðrum orðum þá greiða kaupendur, þ.e. neytendur, fyrirtæki og hið opinbera, mun hærra verð fyrir vörur og þjónustu þegar keppinautar koma sér saman um verð, hafa samráð við gerð tilboða eða skipta með sér mörkuðum, en þar sem heiðarleg samkeppni fær að njóta sín. Slíkt samráð fyrirtækja skaðar því bæði hag atvinnulífsins og neytenda. Aðföng fyrirtækja verða dýrari og þegar til lengri tíma er litið dregur það úr samkeppnishæfni atvinnugreina þannig að atvinnutækifærum fækkar. Samkeppniseftirlitið getur lagt háar sektir á fyrirtæki sem taka þátt í ólögmætu samráði. Geta sektir numið allt að 10% af heildarveltu viðkomandi fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu.

Stjórnendur fyrirtækja sem taka þátt í ólögmætu samráði eiga á hættu allt að sex ára fangelsisvist.

Fyrirtæki sem taka eða hafa tekið þátt í ólögmætu samráði geta á grundvelli reglna sem Samkeppniseftirlitið hefur sett komist hjá sektum eða lækkað mögulegar sektir með því að vinna með Samkeppniseftirlitinu við að upplýsa málið. Þessar reglur, sem eru settar að erlendri fyrirmynd, er ætlað að auðvelda Samkeppniseftirlitinu að uppræta þessi alvarlegu brot. Það leiðir af framangreindu að fyrirtæki sem taka þátt í samráði geta haft mikinn hag af þessari samvinnu við eftirlitið. Nánari upplýsingar um þessar reglur og skilyrði fyrir þessari samvinnu er að finna hér.


Helstu samráðsmál:

Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 3/1996 (PDF) Samkeppnishindranir Félags eggjaframleiðenda, viðskiptakjör við sölu eggja-
Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 12/1998 (PDF) Erindi Íslandspósts hf. um aðgang að Rás-þjónustu banka og sparisjóða.

Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 13/2001 (PDF) Ólögmætt samráð og samkeppnishömlur Sölufélags garðyrkjumanna, Ágætis og Mata á grænmetis-, kartöflu- og ávaxtamarkaði.
Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 5/2004 (PDF) Ólögmætt samráð innan Lögmannafélags Íslands

Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 17/2004 (PDF) Rannsókn á samkeppnishindrandi samstarfi á íslenska vátryggingamarkaðnum
Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 21/2004 (PDF) Ólögmætt samráð Kers. hf., Olíuverzlunar Íslands hf., Skeljungs hf. og Bensínorkunnar ehf.

Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 09/2005 (PDF) Ólögmætt samráð tryggingafélaganna við að taka upp Cabas-tjónamatskerfi við bifreiðaréttingar og -sprautun
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 5/2006 (PDF) Ólögmætt samráð innan Félags íslenskra hljómlistarmanna vegna útgáfu gjaldskrár fyrir organistadeild félagsins






 



Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is