Til að auðvelda Samkeppniseftirlitinu að koma upp um ólögmætt samstarf fyrirtækja hafa verið settar reglur sem gera fyrirtækjum sem þátt taka í ólögmætu samstarfi kleift að draga sig út úr samstarfinu. Fyrirtækjunum er umbunað fyrir að upplýsa samkeppnisyfirvöld um hið ólögmæta samstarf. Með því að koma upp um samstarfið og vinna með Samkeppniseftirlitinu að rannsókn þess geta fyrirtækin komist hjá sektum eða sektargreiðslur þeirra orðið mun lægri en ella. Á það skal bent að samkvæmt samkeppnislögum geta sektir á fyrirtæki vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum numið allt að 10% af ársveltu fyrirtækjanna. Þannig gæti fyrirtæki sem hefur 10 milljarða kr. ársveltu sem þátt hefur tekið í alvarlegu og umfangsmiklu ólögmætu samráði með keppinautum sínum um margra ára skeið þurft að greiða allt að einum milljarði króna í sekt verði sök fyrirtækisins sönnuð. Niðurfelling á sekt eða lækkun hennar mundi því væntanlega skipta fyrirtækið miklu máli.
Reglur sambærilegar þeim sem hér hafa verið settar eru í gildi í Bandaríkjunum, hjá Evrópusambandinu og víðar. Reynslan erlendis er sú að reglurnar hafa leitt til uppljóstrunar á ólöglegu samráði, og auðveldað til muna rannsókn mála. Með vísan til þess er talið að hagur samfélagsins af því að upplýsa ólögmætt samráð fyrirtækja vegi þyngra en þær sektir sem falla niður við það að fyrirtæki ganga til samstarfs við samkeppnisyfirvöld um að upplýsa slíka háttsemi.
Aðalatriði reglnanna:
Samkvæmt reglunum mun Samkeppniseftirlitið fella niður sekt á fyrirtæki sem annars hefði verið sektað:
Til þess að fá sekt lækkaða verður fyrirtæki að láta Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem að mati stofnunarinnar eru mikilvæg viðbót við þau sönnunargögn sem stofnunin hefur þegar undir höndum. Þá verður fyrirtækið einnig að hætta þátttöku sinni í hinu meinta ólögmæta samráði.
Þegar metið er hversu mikla lækkun á sektarfjárhæðinni fyrirtæki hlýtur er tekið tillit til þess á hvaða tímapunkti fyrirtækið lagði fram sönnunargögnin og hversu mikla þýðingu þau hafi haft fyrir rannsókn málsins. Einnig hefur Samkeppniseftirlitið hliðsjón af samstarfsvilja fyrirtækisins eftir að það lagði fram sönnunargögnin. Uppfylli fyrirtæki skilyrðin fyrir lækkun sektar mun sektin lækka með eftirfarandi hætti:
Fyrirtæki sem óskar eftir niðurfellingu á sekt eða lækkun á sektarfjárhæð skal óska eftir því við Samkeppniseftirlitið.

- ef fyrirtæki er fyrst fyrirtækja til að láta samkeppnisyfirvöldum í té sönnunargögn sem að þeirra mati geta leitt til rannsóknar á meintu ólögmætu samráði.
- ef fyrirtæki er fyrst fyrirtækja til að láta samkeppnisyfirvöldum í té sönnunargögn sem að þeirra mati gerir þeim kleift að sanna hið ólögmæta samráð.
- það verður að sýna fullan samstarfsvilja á meðan á rannsókn málsins stendur og láta samkeppnisyfirvöldum í té öll sönnunargögn og allar þær upplýsingar sem það býr yfir í tengslum við hið meinta brot á meðan á rannsókn málsins stendur.
- það verður að hætta þátttöku sinni í hinu meinta broti eigi síðar en þegar það kemur upp um hið ólögmæta samráð.
- það má ekki hafa þvingað önnur fyrirtæki til þátttöku í hinu ólögmæta samráði.
Til þess að fá sekt lækkaða verður fyrirtæki að láta Samkeppniseftirlitinu í té sönnunargögn sem að mati stofnunarinnar eru mikilvæg viðbót við þau sönnunargögn sem stofnunin hefur þegar undir höndum. Þá verður fyrirtækið einnig að hætta þátttöku sinni í hinu meinta ólögmæta samráði.
Þegar metið er hversu mikla lækkun á sektarfjárhæðinni fyrirtæki hlýtur er tekið tillit til þess á hvaða tímapunkti fyrirtækið lagði fram sönnunargögnin og hversu mikla þýðingu þau hafi haft fyrir rannsókn málsins. Einnig hefur Samkeppniseftirlitið hliðsjón af samstarfsvilja fyrirtækisins eftir að það lagði fram sönnunargögnin. Uppfylli fyrirtæki skilyrðin fyrir lækkun sektar mun sektin lækka með eftirfarandi hætti:
- fyrsta fyrirtækið sem uppfyllir skilyrðin fyrir lækkun sektar getur fengið sektarupphæðina lækkaða um 30 til 50%,
- annað fyrirtækið sem uppfyllir skilyrðin fyrir lækkun sektar getur fengið sektarupphæðina lækkaða um 20 til 30%,
- önnur fyrirtæki sem á eftir koma og uppfylla skilyrðin fyrir lækkun sektar geta fengið allt að 20% lækkun á sektarupphæðinni.
Fyrirtæki sem óskar eftir niðurfellingu á sekt eða lækkun á sektarfjárhæð skal óska eftir því við Samkeppniseftirlitið.