Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Samkeppniseftirlitið  -  Skipulag

Hlekkir

Finna

Samkeppniseftirlitið - Skipulag

Skipulag



Skipurit Samkeppniseftirlitsins er sniðið að árangurs- og verkefnastjórnun. Til grundvallar skipuritinu liggja eftirfarandi markmið:

  • Að góð yfirsýn sé bæði yfir tiltekna kjarnamarkaði og meginverkefni.
  • Að fyrirliggjandi þekking og reynsla nýtist á hverjum tíma í þau verkefni sem vinna þarf.
  • Að Samkeppniseftirlitið og einstakar einingar þess vinni saman sem ein heild.

Í skipuritinu (ysta hring) eru skilgreindir tíu kjarnamarkaðir sem spanna öll svið atvinnulífsins. Öllum verkefnum Samkeppniseftirlitsins sem beinast að tilteknum þáttum atvinnulífsins er hægt að finna stað í skipuritinu (t.d. heyra matvörumarkaður og olíuvörur undir markaðinn neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.). Þá hafa verið skilgreindir yfir 60 undirflokkar undir þessum kjarnamörkuðum. Tilgangurinn er sá að byggja upp og viðhalda góðri yfirsýn og þekkingu á helstu mörkuðum, en það gerir stofnuninni m.a. betur kleift að forgangsraða og móta áherslur í starfi sínu.

Einnig eru í skipuritinu skilgreind meginverkefni (miðjuhringur) sem mikilvægt er að fela í skilgreinda umsjón sérfræðinga í því skyni að byggja upp yfirsýn og þekkingu á viðkomandi verkefnum.

Sérfræðingar Samkeppniseftirlitsins bera skilgreinda ábyrgð á umsjón með mörkuðum og verkefnum. Staðsetning hvers starfsmanns í skipuriti ræðst fyrst og fremst af því hvar þekking hans og reynsla nýtist best með hliðsjón af áherslum og forgangsröðun stofnunarinnar á hverjum tíma.

Þá er yfirstjórn stofnunarinnar í miðju skipuritsins. Forstjóri ber ábyrgð gagnvart stjórn á daglegri starfsemi stofnunarinnar. Aðstoðarforstjóri og aðallögfræðingur bera skilgreinda ábyrgð á faglegum úrlausnum og verkefnum stofnunarinnar. Aðstoðarforstjóri er staðgengill forstjóra.

Rekstur Samkeppniseftirlitsins heyrir beint undir forstjóra en dagleg framkvæmd er í höndum umsjónarmanns rekstrarmálefna.









Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is