SE byggir starfsemi sína á skýrri stefnumótun sem reglulega er tekin til endurskoðunar og byggir á skýrum markmiðum. Stefnan byggir á eftirfarandi meginþáttum:
- Mannauðsstefnu þar sem kappkostað er að SE hafi á hverjum tíma úrvals starfsfólk á sínum snærum, sem
býr við fyrsta flokks starfsaðstöðu, símenntun og jafnrétti.
- Innri ferlum sem stuðla að fagmennsku.
- Skýrri sýn á árangur af verkefnum stofnunarinnar.
SE framfylgir stefnu sinni með því að setja sér markmið og leitast við að setja markmiðum sínum mælikvarða sem reglulega er fylgst með. Þessi vinna byggir á aðferðarfræði árangursstjórnunar (e. “balanced scorecard”) en í því felst m.a. að stofnunin hefur sett sér svokallað stefnukort, þar sem meginmarkmið hennar eru sett fram í fjórum grunnstoðum starfseminnar, þ.e. fjármálum, mannauði, innri ferlum og afrakstri.
Jafnframt hefur SE mótað svokallað skorkort, þar sem markmiðin eru nánar útfærð og mælanleg viðmið þróuð til að fylgjast með árangri starfseminnar og móta áherslur með hliðsjón af árangri. SE hefur tekið upp og lagað verkstjórnar- og gagnakerfi og kerfisbundna tímaskráningu verkefna að þessu. Umfjöllun hér á eftir byggir að verulegu leyti á framangreindu.












