Sjálfstæð stofnun
Samkeppniseftirlitið er sjálfstæð stofnun með sérstaka stjórn. Stofnunin heyrir undir viðskiptaráðherra.
Í sameiginlegri yfirlýsingu viðskiptaráðuneytisins og Samkeppniseftirlitsins (pdf - opnast í nýjum glugga) um samkeppnismál er fjallað um hlutverk beggja við framkvæmd og mótun samkeppnislaga og samskipti milli stofnunarinnar og ráðuneytis fest í sessi.
Samkeppniseftirlitið er A-hluta stofnun og er rekstur hennar greiddur af ríkissjóði.
Stjórn
Með yfirstjórn Samkeppniseftirlitsins fer þriggja manna stjórn sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Þrír varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann stjórnar og ákveður þóknun stjórnarmanna.
Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Samkeppniseftirlitsins. Meiri háttar efnislegar ákvarðanir eru bornar undir stjórn til samþykktar eða synjunar. Stjórnin hefur sett sér starfsreglur, nr. 759/2005 (PDF 31KB, opnast í nýjum glugga), þar sem m.a. er kveðið á um hvað teljist til meiri háttar ákvarðana.
Stjórnin er þannig skipuð:
Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, dósent og forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum við Háskólann í Reykjavík, formaður.
Jóhann R. Benediktsson, framkvæmdastjóri.
Inga Jóna Jónsdóttir, dósent viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.
Varamenn í stjórn eru þessir:
Eyvindur G. Gunnarsson, lector við lagadeild Háskóla Ísalnds.
Guðný Hrund Karlsdóttir, viðskiptastjóri.
Þóra Margrét Hjaltested, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.
Forstjóri
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins er ráðinn af stjórn stofnunarinnar. Forstjóri annast daglega stjórnun á starfsemi og rekstri stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar ákveður starfskjör forstjóra og setur honum starfslýsingu. Forstjóri ræður starfsmenn stofnunarinnar.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins er Páll Gunnar Pálsson.
Aðstoðarforstjóri er Guðmundur Sigurðsson.
Aðstoðarforstjóri er Ásgeir Einarsson.












