Samrunareglur eru einn af hornsteinum samkeppnisréttarins og gegna mikilvægu hlutverki við að koma í veg fyrir að samkeppnislegri gerð markaða sé breytt, með samruna eða yfirtöku, á þann hátt að samkeppni hverfi eða skerðist.
Í íslenskum samkeppnislögum nr. 44/2005 er kveðið á um samruna í 17. gr. og 17. gr. a til 17. gr. e laganna. Samkeppniseftirlitið hefur eftirlit með samrunum fyrirtækja sem falla undir ákvæði þessi, sbr. og reglur Samkeppniseftirlitsins nr. 684/2008 um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum.
Samrunareglur samkeppnislaga mæla fyrir um tilkynningarskyldu á fyrirtæki sem standa að eða taka þátt í yfirtöku eða samruna þegar uppfyllt eru ákveðin skilyrði. Þannig er skylt að tilkynna samruna til Samkeppniseftirlitsins þegar sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er 2 milljarðar kr. eða meira á Íslandi og að minnsta kosti tvö af þeim fyrirtækjum sem aðild eiga að samrunanum hafa a.m.k. 200 millj. kr. ársveltu á Íslandi hvert um sig. Samkeppniseftirlitið hefur þó heimild til að krefja samrunaaðila um samrunatilkynningu þrátt fyrir að framangreind skilyrði séu ekki uppfyllt og ef sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er meiri en einn milljarður kr. á ári.
Tilkynna skal Samkeppniseftirlitinu um samruna áður en hann kemur til framkvæmda en eftir að samningur um hann er gerður, tilkynnt er opinberlega um yfirtökuboð eða yfirráða í fyrirtæki er aflað. Samruni sem fellur undir ákvæði samkeppnislaga skal því ekki koma til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann.
Samkeppniseftirlitið getur ógilt samruna eða sett honum skilyrði ef stofnunin telur að samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða verði til eða að slík staða styrkist, eða verði til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.
Samkeppniseftirlitið skal innan 25 virkra daga tilkynna þeim aðila sem sent hefur stofnuninni samrunatilkynningu ef hún telur ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samruna. Ákvörðun um ógildingu samruna skal taka eigi síðar en 70 virkum dögum eftir að slík tilkynning hefur verið send. Heimild er til að framlengja þann frest um allt að 20 virka daga. Þegar um er að ræða styttri tilkynningu getur Samkeppniseftirlitið krafist lengri tilkynningar ef skilyrði 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga eru ekki uppfyllt eða slíkt þykir nauðsynlegt til að meta samkeppnisleg áhrif samrunans.
Í samrunatilkynningu skal veita upplýsingar um samrunann, þau fyrirtæki sem honum tengjast, um viðkomandi markaði og um önnur nauðsynleg atriði við athugun á samkeppnislegum áhrifum samrunans. Í reglum Samkeppniseftirlitsins nr. 684/2008 um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum eru nánar tilgreindar þær upplýsingar sem fram verða að koma í tilkynningu. Heimild er til styttri tilkynningar ef uppfyllt eru eitt af skilyrðum a til e liðar 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga, svo sem ef þeir markaðir þar sem áhrifa samrunans gætir eru ekki tengdir.
Algengar spurningar og svör við þeim
Hvað er samruni?
Samruni í skilningi samkeppnislaga telst hafa átt sér stað þegar breyting verður á yfirráðum til frambúðar í eftirtöldum fjórum tilvikum:
• vegna samruna tveggja eða fleiri fyrirtækja eða hluta úr fyrirtækjum sem áður störfuðu sjálfstætt,
• þegar fyrirtæki tekur yfir annað fyrirtæki,
• vegna þess að einn eða fleiri aðilar, sem þegar hafa yfirráð yfir a.m.k. einu fyrirtæki, eða eitt eða fleiri fyrirtæki ná beinum eða óbeinum yfirráðum, í heild eða að hluta, yfir einu eða fleiri fyrirtækjum til viðbótar með því að kaupa verðbréf eða eignir, með samningi eða öðrum hætti,
• með stofnun fyrirtækis um sameiginlegt verkefni sem gegnir til frambúðar allri starfsemi sjálfstæðrar efnahagseiningar.
Til hvers þarf eftirlit með samrunum fyrirtækja?
Yfirtaka eins fyrirtækis á öðru eða samruni fyrirtækja getur leitt til þess að samkeppni, sem hefur verið til staðar, minnkar eða hverfur jafnvel alveg. Þannig getur orðið til fyrirtæki sem hefur markaðsráðandi stöðu eða jafnvel einokun á markaðnum. Slíkt getur skaðað neytendur með hærra vöruverði, minna vöruúrvali og minni nýsköpun. Með því að hafa eftirlit með samrunum fyrirtækja er hægt að koma í veg fyrir skaðleg áhrif á samkeppni.
Samrunareglur eru þannig einn af hornsteinum samkeppnisréttarins og gegna mikilvægu hlutverki við að koma í veg fyrir að samkeppnislegri gerð markaða sé breytt, með samruna eða yfirtöku, á þann hátt að samkeppni hverfi eða skerðist.
Þarf að tilkynna um alla samruna?
Tilkynningarskylda samrunaaðila verður virk þegar sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er 2 milljarðar kr. eða meira á Íslandi og að minnsta kosti tvö af þeim fyrirtækjum sem aðild eiga að samrunanum hafa a.m.k. 200 millj. kr. ársveltu á Íslandi hvers um sig.
Samkeppniseftirlitið hefur þó heimild til að krefja samrunaaðila um tilkynningu um samrunann sem ekki uppfylla þessi skilyrði ef stofnunin telur að dregið geti umtalsvert úr virkri samkeppni og ef sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er meiri en einn milljarður kr. á ári.
Þá er heimilt að tilkynna um samruna með styttri tilkynningu ef að minnsta kosti eitt af þeim skilyrðum sem fram koma í a til e lið 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga, svo sem ef þeir markaðir þar sem áhrifa samrunans gætir eru ekki tengdir.
Hvenær mega samrunar koma til framkvæmda?
Tilkynna skal um samruna áður en hann kemur til framkvæmda en eftir að samningur um hann er gerður, tilkynnt er opinberlega um yfirtökuboð eða yfirráða í fyrirtæki er aflað. Samruni sem fellur undir ákvæði samkeppnislaga skal ekki koma til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann.
Samkeppniseftirlitið hefur 25 virka daga til athugunar á samkeppnislegum áhrifum samruna eftir að tilkynnt hefur verið um hann. Telji Samkeppniseftirlitið ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samruna skal stofnunin tilkynna samrunaaðilum um það. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um ógildingu eða setningu skilyrða samruna skal taka eigi síðar en 70 virkum dögum eftir að viðkomandi fyrirtækjum var send tilkynning um frekari rannsókn á samrunanum. Samruninn má ekki koma til framkvæmda á meðan slík rannsókn stendur yfir.
Hverjar eru helstu breytingar á ákvæðum samkeppnislaga er varða samruna samkvæmt lögum nr. 94/2008?
Með lögum nr. 94/2008 var ákvæðum samkeppnislaga nr. 44/2005 er varða samruna breytt í ljósi þeirrar reynslu sem komin var á beitingu áður gildandi ákvæða um samruna. Samrunareglur íslenskra samkeppnislaga voru þannig styrktar um leið og þær voru færðar nær reglum EES- og EB- réttarins á sviðinu. Helstu breytingar sem felast í lagabreytingunum eru eftirfarandi:
• Samruni kemur nú ekki til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, sbr. 3. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
• Veltumörk sem miðað er við þegar metið er hvort samrunar séu tilkynningarskyldir eru hækkuð, sbr. 1. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
• Heimilt er nú að tilkynna um samruna með styttri tilkynningu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum svo sem ef þeir markaðir þar sem áhrifa samrunans gætir eru ekki tengdir, sbr. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
• Ákvæðum um fresti til að taka ákvarðanir í samrunamálum hefur verið breytt, sbr. 17. gr. d samkeppnislaga.
• Efnislegt mat Samkeppniseftirlitsins á samkeppnislegum áhrifum samruna tekur nú ekki eingöngu til þess hvort markaðsráðandi staða hafi orðið til eða styrkst heldur einnig til þess hvort samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, sbr. 17. gr. c samkeppnislaga.
• Samkeppniseftirlitið getur nú tekið mál fyrir að nýju, hafi áfrýjunarnefnd eða dómstóll ógilt ákvörðun eftirlitsins sökum formgalla, sbr. 2. mgr. 17. gr. e samkeppnislaga.
• Skilgreiningar á samruna og yfirráðum hafa verið færðar til samræmis við evrópskan samkeppnisrétt, sbr. 17. gr. samkeppnislaga.
Hvað skal koma fram í tilkynningu um samruna?
Í samrunatilkynningu skal veita upplýsingar um samrunann, þau fyrirtæki sem honum tengjast, um viðkomandi markaði og um önnur nauðsynleg atriði við athugun á samkeppnislegum áhrifum samrunans. Í viðauka I í reglum Samkeppniseftirlitsins nr. 684/2008, um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum, sem aðgengilegar eru á heimasíðu þess, eru nánar tilgreindar þær upplýsingar sem fram verða að koma í tilkynningu.
Heimild er til styttri tilkynningar ef uppfyllt eru eitt af skilyrðum a til e liðar 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga, svo sem ef þeir markaðir þar sem áhrifa samrunans gætir eru ekki tengdir. Í slíkum tilvikum þarf ekki að veita jafn víðtækar upplýsingar og þegar um hefðbundna samrunatilkynningu er að ræða og er tæmandi talning þeirra upplýsinga sem skulu fylgja styttri tilkynningu að finna í viðauka II í reglum Samkeppniseftirlitsins nr. 684/2008 um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum.
Í hvaða tilvikum eru samrunar ógiltir?
Allir tilkynntir samrunar eru rannsakaðir af Samkeppniseftirlitinu með tilliti til þess hvort þeir muni raska samkeppni á markaði með umtalsverðum hætti eða hvort markaðsráðandi staða verður til eða að slík staða styrkist. Ef slíkt á ekki við eru samrunar samþykktir án íhlutunar eftirlitsins.
Telji Samkeppniseftirlitið á hinn bóginn að samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða verði til eða að slík staða styrkist, eða verði til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, getur eftirlitið ógilt samruna eða sett honum skilyrði.
Í hvaða tilvikum er samrunum sett skilyrði?
Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið telji að tilkynntur samruni gæti haft skaðleg áhrif á samkeppni getur slíkur samruni verið samþykktur með skilyrðum sem koma í veg fyrir skaðleg áhrif samrunans. Samkeppniseftirlitið hefur síðan eftirlit með því hvort þessum skilyrðum sé fylgt og getur gripið til aðgerða ef svo er ekki.












