Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Útgefið efni

Hlekkir

Finna

Skýrslur og útgefið efni - Ársskýrslur

Ársskýrslur


Samkeppniseftirlitið gefur árlega út skýrslu um starfsemi stofnunarinnar.

Fréttatilkynning - Samkeppniseftirlitið gefur út ársritið: Breytt umhverfi - öflugra eftirlit.

30. ágúst 2007



Fréttatilkynning
frá Samkeppniseftirlitinu

Breytt umhverfi – öflugra eftirlit 
(PDF 1,34KB, opnast í nýjum glugga)

Ársrit Samkeppniseftirlitsins, sem kom út í dag, fimmtudaginn 30. ágúst, ber heitið Breytt umhverfi – öflugra eftirlit. Í tengslum við útgáfu ritsins var nýtt húsnæði Samkeppniseftirlitsins í Borgartúni 26 formlega tekið í notkun þar sem viðskiptaráðherra ávarpaði viðstadda.

Í ritinu er fjallað um áherslur Samkeppniseftirlitsins og hvernig þeim hefur verið fylgt eftir. Þar eru einnig raktar nýlegar breytingar á samkeppnislögum sem ætlað er að styrkja framkvæmd þeirra. Breytingum á skipulagi og reglum um málsmeðferð er lýst, en breytingarnar miða að markvissari vinnubrögðum eftirlitsins, fjallað er um málhraða hjá eftirlitinu og fleira.

Helstu atriði ársritsins eru:

  • Samkeppniseftirlitið hefur varið um 20 % af ráðstöfunartíma sínum í málefni sem tengjast matvörumarkaði, frá miðju ári 2006 til miðs þessa árs. Á því tímabili hafa um 30 stjórnsýslumál verið til meðferðar sem tengjast matvörumarkaði.
  • Mjög mikilvægt er að virk samkeppni ríki í almennri bankaþjónustu. Þess vegna er fjármálastarfsemi á meðal þeirra þátta atvinnulífsins sem Samkeppniseftirlitið leggur megináherslu á í starfsemi sinni.
  • Samkeppniseftirlitið getur samkvæmt nýju lögunum ákveðið að kæra ekki til lögreglu brot einstaklinga sem upplýsa um samkeppnisbrot og liðsinna við rannsókn þeirra.
  • Á árinu 2006 lauk Samkeppniseftirlitið 104 stjórnsýslumálum, en tók upp 106 ný mál til skoðunar. Aldurssamsetning mála er að færast í betra horf en hlutfallslega færri mál eru eins og hálfs árs eða eldri nú en fyrir ári og hlutfall yngri mála að sama skapi hærra.

Í aðfararorðum Gylfa Magnússonar, stjórnarformanns Samkeppniseftirlitsins, að ársrirtinu segir:

„Þótt Samkeppniseftirlitið fylgist fyrst og fremst með starfsemi innlendra fyrirtækja þá liggur í hlutarins eðli að stofnuninni ber jafnframt að gera það sem í hennar valdi stendur til að samkeppni erlendra aðila hérlendis komi íslenskum neytendum til góða”.
Í inngangi Páls Gunnars Pálssonar forstjóra segir:
“Miklu skiptir að fyrirtæki, stjórnvöld og neytendur setji heilbrigt samkeppnisumhverfi á oddinn í þeim umbreytingum sem nú eiga sér stað í íslensku atvinnulífi. Þar hafa allir hlutverki að gegna.”

Nánari upplýsingar veitir:
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sími 585 0700.








Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is