Ársrit 2010 - Samkeppni flýtir efnahagsbata
Ársrit Samkeppniseftirlitsins 2010 komið út
Samkeppniseftirlitið birtir í dag ársrit sitt, undir fyrirsögninni, Samkeppni flýtir efnahagsbata. Í ársritinu er m.a. fjallað um eftirfarandi:
Samkeppni flýtir efnahagsbata - stefnumótun í framhaldi af efnahagshruni (bls. 6).
- „Erfið staða fyrirtækja á mörgum mikilvægum samkeppnismörkuðum gerir aðgerðir til eflingar samkeppni brýnar.”
- „Virk samkeppni er mikilvæg til þess að hraða efnahagsbata og mynda grundvöll fyrir atvinnusköpun.”
Rakin er greining eftirlitsins á samkeppnishindrunum á mikilvægum mörkuðum sem kynnt var í skýrslu nr. 2/2008, Öflug uppbygging – opnun markaða og efling atvinnustarfsemi. Einnig er fjallað um sameiginlegar áherslur norrænu samkeppniseftirlitanna, sbr. skýrslu þeirra, Competition Policy and Financial Crises, Lessons Learned and the Way Forward, sem kynnt var síðasta haust.
Endurskipulagning fyrirtækja skiptir sköpum við endurreisnina (bls. 8).
- „Hafa verður hagsmuni neytenda og samfélagsins af virkri samkeppni að leiðarljósi.”
- „Bankar verða að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og gæta verður fyllsta aðhalds um arðsemi.”
- „Bankar eiga að selja endurskipulögð fyrirtæki svo fljótt sem auðið er, í gagnsæju ferli. Skráning í kauphöll er vænlegur kostur.”
Reifuð eru meginatriði umræðuskjals nr. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja – Stefnumörkun.
Stjórnvöld eiga að styðja við samkeppni (bls. 10).
- Í efnahagskreppu geta ráðstafanir stjórnvalda ráðið miklu um það hversu hraður efnahagsbatinn er.
- Við undirbúning laga og reglna eiga stjórnvöld að meta áhrif þeirra á samkeppni.
- Hafa skal átta meginreglur um samkeppni til hliðsjónar við skipulagsmál og úthlutun lóða.
- Samkeppniseftirlitið hefur birt gátlista sem auðvelda á þeim sem annast opinber útboð að sporna við og koma auga á samkeppnishindranir.
Fjallað er um hlutverk opinberra aðila við eflingu samkeppni og reifuð þrjú álit Samkeppniseftirlitsins, þar sem tilmælum er beint til stjórnvalda í þessu skyni.
Nýsköpun er forsenda velferðar (bls. 12).
- „Virk samkeppni er mikilvæg hvatning til nýsköpunar.”
- „Samkeppni tryggir að ávinningur af nýsköpun skili sér til neytenda.”
Fjallað er um mikilvægi nýsköpunar og hvetjandi áhrif hennar á samkeppni.
Sýna þarf fyrirtækjum og opinberum aðilum meira aðhald (bls. 14).
- „...90% almennings telur að Samkeppniseftirlitið ætti að veita fyrirtækjum og opinberum aðilum meira aðhald.”
- „Yfirgnæfandi meirihluti svarenda, eða 73% var jákvæður í garð Samkeppniseftirlitsins.”
Kynntar eru niðurstöður skoðanakannana um samkeppniseftirlit.
Samkeppnislögum fylgt eftir af festu (bls. 16).
- „Stjórnvaldssektir nema 1,4 milljörðum króna á tveimur árum.”
- „Samkeppniseftirlitið framkvæmdi fjórar húsleitir á árinu 2009.”
- „...hefur Samkeppniseftirlitið aldrei gripið inn í jafn marga samruna og á árinu 2009.”
- „Mælt fyrir um sölu eða uppskiptingu eigna.”
Í ársritinu er yfirlit yfir allar sektarákvarðanir og allar íhlutanir í samrunamálum.
Aukin verkefni hafa áhrif á málshraða (bls. 18).
- „Fyrirsjáanlegt að álag á Samkeppniseftirlitið muni enn aukast.”
- „Samkeppniseftirlitið hefur keppt að því að auka málshraða en vaxandi álag getur snúið þeirri þróun við.”
Fjallað er um málshraða og hvaða þættir hafa áhrif á hann. Einnig eru gefnar upplýsingar um stöðu mála.
Lækkun fjárveitinga kallar á skýra forgangsröðun (bls. 20).
- „Mikilvægt að hugað sé að styrkingu eftirlitsins til framtíðar.”
- „Hjá Samkeppniseftirlitinu starfa um þessar mundir u.þ.b. 22 starfsmenn. Þessum hópi er ætlað að hafa yfirsýn yfir öll svið íslensks atvinnulífs og framfylgja samkeppnislögum gagnvart fyrirtækjum og opinberum aðilum.”
Fjallað er um áhrif niðurskurðar í fjárveitingum til samkeppniseftirlits og aðgerðir sem gripið verður til vegna þess. Einnig er sagt frá tillögum eftirlitsins um fjárveitingar og hvernig fjárveitingavaldið hefur tekið í þær.
Yfirlit yfir starfsemi árin 2009 og 2008.
Í ársritinu er að finna yfirlit yfir ákvarðanir sem birtar hafa verið á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins á árunum 2008 og 2009, ásamt yfirliti yfir álit, úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála og dómsniðurstöður á sama tímabili.
Ársritið er hægt að nálgast með því að smella hér
----
Tilvitnun í Rögnvald J. Sæmundsson, formann stjórnar:
„Það er sterkur vilji til þess innan Samkeppniseftirlitsins að ná framúrskarandi árangri í samkeppnismálum og leggja þannig lóð á vogarskálarnar við endurreisn íslensks atvinnulífs.”
Tilvitnun í Pál Gunnar Pálsson, forstjóra:
„Samkeppniseftirlitið hefur einsett sér að fylgja samkeppnislögum eftir af festu við þær aðstæður sem nú eru. Í aðdraganda bankahrunsins og í framhaldi af því, þ.e. frá ársbyrjun 2009, hefur Samkeppniseftirlitið sektað á annan tug fyrirtækja um samanlagt tæplega 1,4 milljarða króna fyrir brot á samkeppnislögum. Á árinu 2009 ógilti Samkeppniseftirlitið eða stöðvaði fjóra samruna og setti öðrum fimm skilyrði.”
____________________












