Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Skýrslur, ræður og kynningar

Hlekkir

Finna


Skýrskur

Ársrit 2008: Meira aðhald - betri árangur

01. júlí 2008



Ársrit Samkeppniseftirlitsins, sem kom út í dag, fimmtudaginn 26. júní, ber heitið Meira aðhald – betri árangur.  Í ritinu er fjallað um starfsemi Samkeppniseftirlitsins og valin atriði er varða framþróun samkeppni og samkeppnisréttar.  Fjallað er sérstaklega um matvörumarkaðinn, starfsemi hagsmunasamtaka fyrirtækja og bótarétt tjónþola í samkeppnismálum.

Ársrit Samkeppniseftirlitsins 2008: Meira aðhald - betri árangur (pdf-skjal)

Tilvitnanir í ársritið:

  • „Athyglisvert er að af þeim sem fylgst höfðu með aðgerðum Samkeppniseftirlitsins voru 80% jákvæðir í garð þess.” (Samkeppniseftirlitið & almenningur, bls. 8)
  • „...um 63% þeirra, sem þekkja til Samkeppniseftirlitsins, bera mikið traust til þess en einungis 17% bera lítið traust til þess.  Hins vegar segja um 80% forsvarsmanna fyrirtækja að Samkeppniseftirlitið ætti að veita fyrirtækjum meira aðhald”. (Samkeppniseftirlitið & fyrirtæki, bls. 9)
  • „Þrátt fyrir að málum hafi fjölgað og umfang aukist hefur tekist að stytta meðallengd málsmeðferðar talsvert.” ..... „Aldurssamsetning mála hefur einnig breyst mikið til batnaðar.  Þannig eru um 70% mála sem til meðferðar voru í byrjun þessa árs yngri en eins árs, samanborið við 52% árinu áður.” (Aukin skilvirkni – bætt málsmeðferð, bls. 10)
  • „Meginniðurstaðan er sú að allmargir samningar birgja og matvöruverslana fela í sér ákvæði sem kunna að raska samkeppni neytendum til tjóns.”... „Það er mat Samkeppniseftirlitsins að þessar niðurstöður [verðkönnunar SE] veiti vísbendingu um það að forverðmerkingar birgja takmarki verðsamkeppni á milli matvöruverslana”. ..... „Hefur Samkeppniseftirlitið beint þeim tilmælum til birgja og matvöruverslana að ganga úr skugga um að samningar þeirra feli ekki í sér samkeppnishindranir.” (Fela viðskiptasamningar birgja í sér samkeppnishömlur?, bls. 12-15)
  • „Afar brýnt er að hagsmunasamtök fyrirtækja tryggi með öllum tiltækum ráðum að starf á vettvangi þeirra feli ekki í sér ólögmætar samkeppnishindranir.” (Hagsmunasamtök fyrirtækja verða að axla ábyrgð í samkeppnismálum, bls. 16-17)
  • „Samkeppniseftirlitið tekur undir með Neytendasamtökunum um mikilvægi þess að grundvöllur verði skapaður til svokallaðra hópmálssókna í íslensku réttarfari.” (Bótaréttur tjónþola, bls. 18-19)
  • „Málum í meðferð fjölgaði á árinu 2007 miðað við fyrri ár.  Mál sem stofnuð voru á árinu voru 136 en 106 á árinu 2006.  Á árinu lauk 117 málum...”..... „Ábendingar þeirra sem starfa á samkeppnismörkuðum og almennings til Samkeppniseftirlitsins eru mikilvægar og oft á tíðum tilefni og grundvöllur athugana.” (Mál til meðferðar 2007, bls. 22)
  • „Stjórnvöld hafa lýst vilja sínum til að auka rekstrarsvigrúm Samkeppniseftirlitsins.  Samkeppniseftirlitið stefnir þó ekki á að verða stór stofnun [...].Meira máli skiptir að eftirlitið sé í stakk búið til að laða að og halda í hæfustu sérfræðinga sem völ er á.” ... „Eftirlitið leggur einnig áherslu á svigrúm til að leita þekkingar sem til staðar er í háskóla- og fræðasamfélaginu...”. (Inngangur forstjóra, bls. 4)
  • „Stjórnendur stofnunarinnar hafa skýra sýn á framtíð hennar og þann árangur sem ætlunin er að ná á næstu árum.” (Fyrirmyndarstofnun árið 2008, úr fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins, bls. 4)

Í ávarpi Gylfa Magnússonar, stjórnarformanns Samkeppniseftirlitsins, í ársritinu segir m.a.: „Með niðurstöðum í samkeppnismálum, sem eru bæði réttar frá sjónarhóli hagfræði og lögfræði og settar fram á skýran og skiljanlegan hátt, eru leikreglur viðskiptalífsins best mótaðar og jafnframt kynntar fyrir þátttakendum í viðskiptalífinu.”

Í inngangi Páls Gunnars Pálssonar forstjóra segir m.a.: „Aldrei er meiri ástæða til að hafa vakandi auga með samkeppni og samkeppnisaðstæðum en þegar sverfur að í íslensku atvinnulífi.”


Nánari upplýsingar veitir:
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sími 585 0700.






Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is