Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur



Hlekkir

Finna

Ýmsar skýrslur


Skýrsla ECA um samkeppnisleg vandamál á markaði fyrir bankaþjónustu

14. júlí 2006



Á árinu 2005 skipuðu samtök evrópskra samkeppnisyfirvalda, ECA ( European Competition Authorities), vinnuhóp til þess að skilgreina hugsanleg samkeppnisleg vandamál á markaði fyrir almenna bankaþjónustu (e. retail banking market). Markmiðið var að birta skýrslu um niðurstöðuna og tillögur til úrbóta væri þess talin þörf.

Vinnuhópnum var falið að skoða sérstaklega eftirfarandi atriði:
1. Hreyfanleika viðskiptavina milli viðskiptabanka.
2. Aðgang nýrra banka að greiðslumiðlunarkerfum sem nauðsynleg eru fyrir almenna bankastarfsemi.
3. Afstöðu til sameiginlegs greiðslumiðlunarkerfis í Evrópu, SEPA (Single European Payment Area).

Lokaskýrsla og tillögur voru kynntar og samþykktar á fundi forstjóra samkeppnisyfirvalda í Evrópu í maí á þessu ári. Skýrslan var gefin út í júlí. Smellið hér til að skoða skýrsluna (pdf)

Fjármálastarfsemi gegnir mikilvægu hlutverki í efnahagslífi hverrar þjóðar. Hún er ekki aðeins mikilvæg sem slík heldur gegnir hún afgerandi hlutverki fyrir starfsemi á öðrum mörkuðum og í efnahagskerfinu í heild. Þess vegna er grundvallaratriði að samkeppni sé virk á þessum markaði og að hún sé eins skilvirk og mögulegt er. Skortur á samkeppni í þessari þjónustu getur skaðað neytendur sem kemur fram í háu verðlagi, skorti á nýjungum og óskilvirkum fjármálamarkaði.

Þess vegna er fjármálastarfsemi á meðal þeirra þátta atvinnulífsins sem Samkeppniseftirlitið leggur megináherslu á í starfsemi sinni.  Má í því sambandi geta þess að nú í haust mun Samkeppniseftirlitið kynna skýrslu um samkeppni í bankaþjónustu á Norðurlöndunum, sem norrænu samkeppniseftirlitin hafa unnið að.








Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is