Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Samkeppniseftirlitið - Fréttir

Hlekkir

Finna

Fréttir

Fréttir


Samkeppni á markaði fyrir vinnumiðlun og atvinnuauglýsingar

01. júlí 2010



Samkeppniseftirlitið hefur beint því til Vinnumálastofnunar að: 

  • Vinnumálastofnun birti með meira áberandi hætti en nú er gert tengla á heimasíður einkarekinna vinnumiðlana, þar sem auglýsingar um laus störf birtast. Þannig beini Vinnumálastofnun þeim sem leita til stofnunarinnar í atvinnuleit í ríkari mæli til hinna einkareknu vinnumiðlana sem starfa á markaðnum til að afla upplýsinga um laus störf á vegum þeirra og ráðgjöf að öðru leyti.
  • Vinnumálastofnun hafi nánara samstarf við einkareknar vinnumiðlanir um veitingu þjónustu, t.d. með því að nýta skráningar- og úrvinnslukerfi þeirra. Getur þetta m.a. átt við um eftirlit með þeim sem eru skráðir atvinnulausir og umsóknarferli þeirra eða greiningu á kröfum atvinnurekenda til umsækjenda og mat á því hvaða atvinnuleitendur uppfylli viðkomandi kröfur. Til greina kæmi að bjóða út tiltekna verkþætti eða gera þjónustusamninga við einkareknar vinnumiðlanir.

Tilmæli þessi koma fram í áliti Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2010, Þátttaka Vinnumálastofnunar á markaði fyrir vinnumiðlun og atvinnuauglýsingar.
Í álitinu, sem birt er Vinnumálastofnun í kjölfar kvörtunar frá einkareknu vinnumiðluninni Job.is/Nettengslum ehf., er rakið hvaða áhrif það hefur haft á einkareknar vinnumiðlanir í núverandi efnahagsástandi að atvinnurekendur hafi nýtt sér frekar gjaldfrjálsa þjónustu Vinnumálastofnunar en þjónustu þeirra fyrrnefndu. Þar sem samkeppni á markaðnum sé hætta búin beinir eftirlitið fyrrgreindum tilmælum til Vinnumálastofnunar. Að mati eftirlitsins geti þau verið til þess fallin að styðja við markmið Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðsaðgerðir, jafnframt því að efla samkeppni á markaði fyrir einkareknar vinnumiðlanir.








Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is