Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Samkeppniseftirlitið - Innlendar fréttir

Hlekkir

Finna

Innlendar fréttir

Innlent


Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 62/2008

15. desember 2008



Samkeppniseftirlitinu barst ósk um undanþágu frá samráðsbanni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 frá Valitor hf.  Óskaði Valitor eftir því að Samkeppniseftirlitið samþykki að félagið ákveði og setji svonefnt samræmt milligjald  á innanlandsmarkaði fyrir greiðslukortaviðskipti. Nánar tiltekið er þess óskað, telji Samkeppniseftirlitið að gjaldið falli undir 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, að veitt verði undanþága á grundvelli 15. gr. sömu laga. Milligjaldið er greiðsla frá færsluhirði fyrir hönd söluaðila til útgefenda kreditkorta. Er greiðslan sögð fyrir þá þjónustu sem útgefendur korta veita söluaðilum vegna viðskipta þar sem kreditkort eru notuð sem greiðslumiðill.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er að almennt séð sé ekki unnt að útiloka að setning samræmds milligjalds geti uppfyllt kröfur 15. gr. samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið verði hins vegar að hafna ósk Valitors um undanþágu frá banni samkeppnislaga við verðsamráði til að ákvarða og setja samræmt milligjald á innanlandsmarkaði fyrir kreditkortaviðskipti. Byggir niðurstaðan á því að Valitor hafi ekki tekist að sýna fram á með fullnægjandi hætti að öll skilyrði 15. gr. samkeppnislaga séu uppfylt. Ákvörðun








Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is