Sleppa leiðarkerfi

Samkeppniseftirlitið - Stuðlar að virkri samkeppni almenningi til hagsbóta

ÍslenskaEnglish


Hlekkir



Fréttabréf

Fréttabréf

Tek við HTML pósti


 
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 1
Vottun um gott aðgengi frá SJÁ og Örykjabandalaginu. Forgangur 2

Breyta bakgrunnslit

Hvítur bakgrunnur Svartur bakgrunnur Grænn bakgrunnur Blár bakgrunnur Rauður bakgrunnur
Upprunalegar stillingar


Letur tól

Breyta leturþyngd

Stækka letur Minnka letur

Breyta leturstærð

Venjulegt letur Feitletrað letur


Leit

Hlekkir

Finna

Leitarniðurstaða

Leitarniðurstaða


Ákvörðun
Heiti máls: Yfirtaka Íslandsbanka á Eik Properties ehf.
Númer máls: 22/2010
Tegund máls: Ákvörðun
Atvinnuvegir: Fjármálaþjónusta
Efni máls: Samrunamál
Málsaðilar: Íslandsbanki, Eik Properties ehf
Niðurstaða: Íhlutun

Íslandsbanki hf. tilkynnti Samkeppniseftirlitinu um yfirtöku sína á Eik Properties ehf. Starfsemi félagsins felst í útleigu verslunar- og atvinnuhúsnæðis. Áður hefur stór hluti markaðarins fyrir útleigu á verslunar- og atvinnuhúsnæði færst undir yfirráð viðskiptabankanna og fleiri félaga sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 15/2010. Þar sem fasteignafélög reiða sig gjarnan verulega á lánsfé við fjármögnun, þ.e. eiginfjárhlutfall þeirra er jafnan lágt, skapa þessi tengsl verulega hættu á því að samkeppni sé raskað.

Strax í kjölfar bankahrunsins, eða í nóvember 2008, beindi Samkeppniseftirlitið tíu meginreglum um samkeppni til banka í eigu ríkisins, sem eftirlitið taldi að hafa þyrfti hliðsjón af við endurskipulagningu fyrirtækja (sjá álit nr. 3/2008, Ákvarðanir banka og stjórnvalda um framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum).

Í desember sl. birti Samkeppniseftirlitið umræðuskjal nr. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja, en þar er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Kallaði Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum ýmissa hagsmunaaðila um umræðuskjalið, sem nýst hafa við þá íhlutun í starfsemi banka sem hér er kynnt.

Úrskurður áfrýjunarnefndar nr. 18/2009, Síminn gegn Samkeppniseftirlitinu, sem féll í lok janúar á þessu ári, hafði einnig mikla þýðingu við úrlausn málsins. Samkvæmt úrskurðinum hefur Samkeppniseftirlitið heimild til að setja yfirtöku banka á atvinnufyrirtækjum skilyrði, enda þótt yfirtakan feli ekki í sér skörun á mörkuðum eða markaðsráðandi stöðu. Taldi áfrýjunarnefndin að óvenjulegar aðstæður í atvinnulífinu kölluðu á þessa heimild.

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raski samkeppni og að nauðsynlegt sé að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni.

Á meðal skilyrða má nefna að lögð er sú skylda á Íslandsbanka að selja Eik innan tilskilins tíma. Jafnframt er mælt fyrir um ýmis skilyrði sem ætlað er að koma í veg fyrir mögulega samhæfingu í viðskiptastefnu atvinnufyrirtækja undir yfirráðum Íslandsbanka og tryggja að þau starfi áfram sem sjálfstæðir keppinautar á markaði.
 
Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um mál þar sem sambærileg skilyrði eru sett. Er m.a. fjallað nánar um þau í fréttatilkynningu, dags. 31. mars sl.

 


Til baka






Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavik, pósthólf 5120, sími 5850700, bréfsími 5850701, samkeppni@samkeppni.is