| Ákvörðun | ||
| Heiti máls: | Yfirtaka Arion banka hf. á Drögum ehf. | |
| Númer máls: | 12/2010 | |
| Tegund máls: | Ákvörðun | |
| Atvinnuvegir: | Fjármálaþjónusta | |
| Efni máls: | Samrunamál | |
| Málsaðilar: | Arion banki hf., Drög ehf. | |
| Niðurstaða: | Ekki íhlutun | |
| Finna pdf skjal: | Ákvörðun | |
|
Með bréfi sem barst Samkeppniseftirlitinu 8. mars. 2009 tilkynnti Arion banki hf. (hér eftir Arion banki) stofnuninni um yfirtöku sína á Drögum ehf. (hér eftir Drög). Drög voru móðurfélag Íslenskra aðalverktaka en við meðferð samrunamálsins var sá hluti félagsins seldur sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 11/2010 Kaup IP verktaka ehf. á Íslenskum aðalverktökum hf. Eftir stóðu önnur dótturfélög Draga en starfsemi á vegum þeirra félaga felst í umsjón með lóðakaupum, þróun og sölu byggingarlóða. Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til þess að aðhafast vegna samrunans.
|
||
|
Til baka |
||












