Senda ábendingu um samkeppnislagabrot eða óeðlilegar verðhækkanir

Hér getur þú komið á framfæri vísbendingum um samkeppnishindranir, þar á meðal um óeðlilegar verðhækkanir eða okur á vörum og þjónustu.

Samkeppniseftirlitið mun eins og kostur er vinna úr innkomnum ábendingum og meðal annars taka afstöðu til þess hvort ábendingin kalli á eitthvað af eftirtöldu:

  1. Hvort rannsaka þurfi mögulega misnotkun á markaðsráðandi stöðu, sbr. 11. gr. samkeppnislaga.
  2. Hvort rannsaka þurfi mögulegt samráð keppinauta, sbr. 10. gr. samkeppnislaga.
  3. Hvort tilefni sé til aðgerða til að bæta virkni markaða, án þess að samkeppnislög hafi verið brotin, sbr. c-lið 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga.
  4. Hvort ábendingin eigi fremur undir önnur stjórnvöld, t.d. Neytendastofu, Lyfjastofnun eða Seðlabankann (fjármálaeftirlit). Verður ábendingin þá framsend til viðkomandi stjórnvalds.

Við förum yfir allar ábendingar og könnum hvort ástæða sé til afskipta að hálfu Samkeppniseftirlitsins. Vegna álags getum við þó ekki ábyrgst að öllum ábendingum verði svarað. Viljir þú fylgja ábendingu þinni nánar eftir getur þú haft samband í gegnum netfangið samkeppni@samkeppni.is eða í síma 585-0700.


Til að fyrirbyggja ruslpóst: