Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Yfirtaka Arion banka hf. á eignum þrotabús Sigurplasts ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 7/2011
  • Dagsetning: 15/2/2011
  • Fyrirtæki:
    • Arion banki hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Arion banki tók yfir eignir þrotabús Sigurplast sem starfað hefur við framleiðslu á ýmsum plastvörum. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða ítarleg skilyrði, sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu. Hefur Arion bani fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni, með undirritun sáttar. Við vinnslu málsins hefur einnig verið höfð hliðsjón af kvörtunum og ábendingum sem Samkeppniseftirlitinu hafa borist.

    Á meðal skilyrða má nefna að lögð er sú skylda að selja Sigurplast eins fljótt og auðið er. Jafnframt er mælt fyrir um ýmis skilyrði sem ætlað er að koma í veg fyrir mögulega samhæfingu í viðskiptastefnu atvinnufyrirtækja undir yfirráðum Arion banka og tryggja að þau starfi áfram sem sjálfstæðir keppinautar á markaði.