Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Yfirtaka Íslandsbanka hf. á Byr hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 33/2011
  • Dagsetning: 17/10/2011
  • Fyrirtæki:
    • Byr sparisjóður og Byr hf.
    • Íslandsbanki hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjármálaþjónusta
    • Viðskiptabankaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Íslandsbanka og Byr voru keppinautar á fjármálamarkaði. Varð Íslandbanki hlutskarpastur í útboði á nýju hlutafé í Byr. Í ákvörðun eftirlitsins kemur fram að sterkar vísbendingar séu um að þessi samruni muni auka skaðlega fákeppni. Samrunaaðilar hafa hins vegar borið því við að heimila yrði samrunann á vegna reglna samkeppnisréttarins um fyrirtæki á fallanda fæti (e. failing firm defence). Er í því sambandi vísað til alvarlegrar stöðu Byrs. Viðurkennt er að slík aðstaða fyrirtækis geti leitt til þess að heimila beri samruna. Ástæðan er sú að í slíkum tilvikum stafa samkeppnishömlurnar ekki af samrunanum sem slíkum heldur af erfiðri stöðu hins yfirtekna fyrirtækis.

    Sökum þessa hefur Samkeppniseftirlitið framkvæmt viðamikla rannsókn á stöðu Byrs, hvernig staðið var að sölu fyrirtækisins og hvort fyrir hendi hafi verið aðrir raunhæfir möguleikar á sölu Byrs sem væru hagfelldari fyrir samkeppni. Hefur eftirlitið í því sambandi aflað gagna og sjónarmiða frá m.a. innlendum og erlendum fyrirtækjum sem sýndu áhuga á að kaupa Byr og leitað viðhorfa Fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytsins.
    Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að fjárhagsstaða Byrs sé mjög slæm og liggur fyrir að kröfur laga um eiginfjárgrunn fjármálafyrirtækja séu ekki uppfylltar. Eftirlitið telur að söluferli Byrs hafi verið tilteknum annmörkum háð en að raunhæfir möguleikar á annarri sölu en til Íslandsbanka hafi ekki verið fyrir hendi. Þá skiptir hér umtalsverðu máli að upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu sýna að ef þessi samruni gengi ekki eftir myndi stofnunin beita heimildum sínum og færa inn- og útlán Byrs til einhvers stóru viðskiptabankanna. Af þessu öllu leiðir að skilyrði um fyrirtæki á fallanda fæti eru uppfyllt og Samkeppniseftirlitið hefur því ekki heimildir að lögum til þess að hafa frekari afskipti af samrunanum.

    Samkeppniseftirlitið er þeirrar skoðunar að þessi óhjákvæmilega niðurstaða skaði samkeppni þar sem hún eykur samþjöppun og fákeppni. Það er því afar brýnt að Samkeppniseftirlitið og aðrir hlutaðeigandi aðilar beiti sér fyrir því að á milli viðskiptabankanna þriggja eigi sér ekki stað nein samvinna eða samskipti sem skaðar samkeppni viðskiptalífinu og almenningi til tjóns.

Staða máls

Áfrýunarnefnd samkeppnismála

Úrskurðir