Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni 365 miðla ehf. og Konunglega kvikmyndafélagsins ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 25/2014
  • Dagsetning: 28/8/2014
  • Fyrirtæki:
    • 365 miðlar efh.
    • Konunglega kvikmyndafélagið ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
    • Ljósvakamiðlar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Í ákvörðun nr. 25/2014, Samruni 365 miðla ehf. og Konunglega kvikmyndafélagsins ehf. kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að samruninn hafi ekki skaðleg áhrif á samkeppni eða fjölræði og fjölbreytni í fjölmiðlum, sbr. 62. gr. b í lögum um fjölmiðla nr. 38/2011. Niðurstaðan byggist m.a. á því að tekjur Konunglega kvikmyndafélagsins á fyrstu fimm mánuðum þessa árs gáfu til kynna að hlutdeild félagsins á þeim mörkuðum sem það starfaði væri vart merkjanleg. Þannig hafi samruninn ekki í för með sér aukningu á hlutdeild 365 miðla á mörkuðum málsins. Ekki eru að öðru leyti forsendur til að aðhafast vegna samrunans. Í ákvörðuninni er þó ítrekað það sem fram kemur í ákvörðun þess nr. 34/2013, Kaup 365 miðla ehf. á eignum D3 Miðla ehf., að staða 365 miðla á ýmsum undirmörkuðum fjölmiðlamarkaðar er mjög sterk. Fyrirtækinu ber því að gæta vel að sér, enda geta samningar og önnur hegðun þeirra orðið til þess að hindra að keppinautar þeirra nái að vaxa og dafna og efli þar með samkeppni. Það mál sem hér er til umfjöllunar er hins vegar ekki vettvangur fyrir Samkeppniseftirlitið til þess að grípa til aðgerða vegna þessa.