Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup SF VII slhf. á hlut í Kynnisferðum hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 22/2015
  • Dagsetning: 3/9/2015
  • Fyrirtæki:
    • Kynnisferðir hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar fjárfestingu SF VII slhf. í hlut í Kynnisferðum. Fyrirhuguð viðskipti fela í sér breytingu á yfirráðum þannig að SF VII mun sameiginlega fara með yfirráð yfir félaginu ásamt núverandi hluthöfum félagsins. SF VII er framtaksfjárfestingarsjóður í rekstri sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis, dótturfélagi Arion banka. Kynnisferðir er ferðaþjónustufyrirtæki sem rekur margvíslega þjónustu henni tengdri þ. á m. rekstur hópbifreiða og ferðskrifstofu.

    Að mati Samkeppniseftirlitsins kann samruninn að óbreyttu að valda röskun á samkeppni og hafa samrunaaðilar lokið málinu með sátt við eftirlitið. Er skilyrðum sáttarinnar ætlað að tryggja samkeppnislegt sjálfsstæði Kynnisferða gagnvart Arion banka og þeim hluthöfum sem eiga hluti í keppinautum Kynnisferða.