Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Skinneyjar–Þinganess hf. og Auðbjargar ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 32/2015
  • Dagsetning: 4/12/2015
  • Fyrirtæki:
    • Skinney-Þinganes hf.
    • Auðbjörg ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Sjávarútvegur og fiskvinnsla
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar samruna Skinneyjar-Þinganess hf. og Auðbjargar ehf. Um er að ræða fyrirtæki sem starfa bæði við útgerð, vinnslu og sölu á sjávarafla. Við skoðun samrunans kom í ljós að hlutdeild samrunaaðila í öllum tegundum nema humar var lægri en 20% af úthlutuðum aflaheimildum. Samkeppniseftirlitið aflaði því ítarlegri upplýsinga um markaðinn fyrir veiðar, vinnslu og sölu á humarafla. Rannsókn eftirlitsins leiddi engar vísbendingar í ljós um að samruninn væri til þess fallinn að raska samkeppni með umtalsverðum hætti. Af þeim sökum voru ekki forsendur til íhlutunar í málinu.