Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Ákvörðun um breytingu á gildistíma undanþágu ákvörðunar nr. 26/2010, Starfsemi Íslandsrótar Auðkennis

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 4/2016
  • Dagsetning: 28/1/2016
  • Fyrirtæki:
    • Auðkenni ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjármálaþjónusta
    • Önnur fjármálaþjónusta
  • Málefni:
    • Undanþágur
  • Reifun

    Auðkenni ehf. óskaði eftir framlengingu á undanþágu sem upphaflega hafði verið veitt til 31. desember 2011 með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 26/2010, Starfsemi Íslandsrótar Auðkennis og framlengd einu sinni áður, til 31. desember 2015, með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 39/2011, Ákvörðun um breytingu á gildistíma undanþágu ákvörðunar nr. 26/2010, Starfsemi Íslandsrótar Auðkennis.

    Samkeppniseftirlitið hefur fallist á kröfu Auðkennis ehf. og gildir ofannefnd undanþága nú til 31. desember 2018.