Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup SMI ehf. á öllum hlutum í Korputorgi ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 22/2016
  • Dagsetning: 20/9/2016
  • Fyrirtæki:
    • SMI hf.
    • Korputorg ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjármálaþjónusta
    • Önnur fjármálaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup SMI ehf. á Korputorgi ehf. Um er að ræða láréttan samruna á markaði fyrir leigu á atvinnuhúsnæði til ótengdra aðila á höfuðborgarsvæðinu. Eftir samrunann verður eignsafn SMI ehf. um 51.000 fermetrar atvinnuhúsnæðis og verður markaðshlutdeild samrunaaðila óveruleg.

     Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.