Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Leigufélaginu Kletti ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 35/2016
  • Dagsetning: 29/11/2016
  • Fyrirtæki:
    • Almenna Leigufélagið ehf.
    • Leigufélagið Klettur ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
    • Fasteignasala
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Leigufélaginu Kletti ehf. Um er að ræða láréttan samruna á markaði fyrir leigu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Eftir samrunann verður Almenna leigufélagið eitt stærsta einkarekna leigufélag landsins. Nokkur fjöldi leigufélaga og annarra einkaaðila eru starfandi á markaðnum sem veita fyrirtækinu samkeppnislegt aðhald.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.