Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup S&K eignarhaldsfélags ehf. á Höfðabrekku ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 8/2018
  • Dagsetning: 26/2/2018
  • Fyrirtæki:
    • S&K eignarhaldsfélag ehf.
    • Höfðabrekka ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Ferðaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup S&K eignarhaldsfélags ehf. á Höfðabrekku ehf. S&K eignarhaldsfélag er móðurfélag Miðbæjarhótel/Centerhótels ehf. sem rekur sex hótel í miðbæ Reykjavíkur undir vörumerkinu Center hótel. Starfsemi Höfðabrekku felst í rekstri Hótel Kötlu sem staðsett er í Vík í Mýrdal. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að ekki er ástæða til að ætla að samþjöppun á skilgreindum markaði þessa máls í kjölfar samrunans geti verið grundvöllur samkeppnisbresta. Þá er ekki ástæða til að ætla að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005.