Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Basko ehf. á Eldum rétt ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 14/2018
  • Dagsetning: 9/5/2018
  • Fyrirtæki:
    • Basko ehf.
    • Eldum rétt ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Basko ehf. á helmingshlut í Eldum rétt ehf. Basko er eignarhaldsfélag í eigu Horns III slhf., Árna Péturs Jónssonar, Station ehf. og Borgarhólma ehf. Félagið heldur utan um eignarhluti í nokkrum fyrirtækjum í verslunar- og veitingarekstri og er skráður tilgangur þess samkvæmt samþykktum félagsins verslunar- og veitingarekstur, eignaumsýsla, rekstur fasteigna, fjárfestingar í félögum með skylda starfsemi, lánastarfsemi, inn- og útflutningur, kaup og sala eigna og annar skyldur rekstur. Helstu félög sem eru undir yfirráðum Basko eru Basko verslanir ehf. sem hefur aðallega með höndum rekstur verslanakeðja á smásölumarkaði með dagvörur undir vörumerkjunum 10-11 og Iceland. Eldum rétt er netverslun sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu matarpakka sem séu sér tilbúnir til eldunar fyrir heimili.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.