Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup HB Granda hf. á Ögurvík ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 30/2018
  • Dagsetning: 22/11/2018
  • Fyrirtæki:
    • HB Grandi hf.
    • Ögurvík ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sjávarútvegur og fiskvinnsla
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar kaup HB Granda hf. á Ögurvík ehf. Í samrunatilkynningu kemur fram að HB Grandi geri út fjóra ísfisktogara, tvo frystitogara og tvö uppsjávarskip.  Fari þar fram vinnsla á botn- og uppsjávarfiski og sé botnfiskvinnsla í Reykjavík og Vopnafirði ásamt því að hluti vinnslunnar sé um borð í frystitogurum félagsins. Félagið reki fiskiðjuver á Vopnafirði sem er sérhæft til vinnslu á uppsjávarfiski ásamt því að reka uppsjávarvinnslu á Akranesi þar sem unnin séu loðnuhrogn. Þá segir að Ögurvík geri út einn frystitogara til botnfiskveiða og að vinnsla afla fari fram um borð. Ekki verður séð að samruninn leiði til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða samruninn leiði til þess að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, sbr. 17. gr. c. samkeppnislaga. Í ljósi þessa og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að með kaupum HB Granda á 100% hlutafjár í Ögurvík sé ekki ástæða til að aðhafast frekar vegna umrædds samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.