Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Ósk um undanþágu fyrir Hreyfil svf. til að gefa út sameiginlegan ökutaxta fyrir leigubifreiðar sem aka á vegum Bifreiðastöðvar Hreyfils

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 34/2007
  • Dagsetning: 2/7/2007
  • Fyrirtæki:
    • Hreyfill svf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Leigubílaþjónusta
  • Málefni:
    • Undanþágur
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til umfjöllunar nokkur mál sem varða samkeppnisaðstæður á leigubifreiðamarkaðnum.

    Einu málinu lauk með því að Samkeppniseftirlitið birti samgönguráðherra, af gefnu tilefni, álit (nr. 2/2007) vegna samkeppnishindrandi ákvæða í lögum og reglum um leigubifreiðar. Er því beint til ráðherra að hann beiti sér fyrir því að hinum samkeppnishamlandi lögum og reglugerðum verði breytt þannig að samkeppni fái þrifist á leigubifreiðamarkaðnum til hagsbóta fyrir almenning.

    Jafnframt því að beina áliti til samgönguráðherra hefur Samkeppniseftirlitið tekið þrjár ákvarðanir sem varða leigubifreiðar og rekstur þeirra. Í ákvörðun nr. 28/2007 kemst stofnunin að þeirri niðurstöðu að hópur leigubifreiðastjóra sem störfuðu á leigubifreiðastöðvunum BSH í Hafnarfirði og Aðalbílum í Reykjanesbæ hafi haft með sér ólögmætt samráð er þeir sammæltust um að segja upp samningum sínum við bifreiðastöðvarnar. Ákvarðanir nr. 33/2007 og 34/2007 fjalla um undanþágur til eins árs til handa leigubifreiðastöðvunum Hreyfli annars vegar og BSR hins vegar að gefa út hámarksökutaxta fyrir hvora stöð fyrir sig.