Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Ósk leigubifreiðastöðvarinnar Hreyfils svf um undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga til að gefa út sameiginlega verðskrá fyrir félagsmenn Hreyfils

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 23/2006
  • Dagsetning: 30/6/2006
  • Fyrirtæki:
    • Hreyfill
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Leigubílaþjónusta
  • Málefni:
    • Undanþágur
  • Reifun

    Heimild til leigubifreiðastöðvarinnar Hreyfils svf. til útgáfu á hámarksökutöxtum.Í ákvörðun þessari veitir Samkeppniseftirlitið leigubifreiðastöðinni Hreyfli svf. heimild til útgáfu á hámarksökutöxtum fyrir bifreiðastjóra sem reka leigubifreiðar frá bifreiðastöð félagsins.  Heimildin er veitt til eins árs og bundin tilteknum skilyrðum.

    Ákvörðunin kemur í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, nr. 4/2006 Afnám á hámarksökutöxtum leigubifreiða sem Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra gefur út, sem birt var 7. febrúar 2006, og ákvörðun nr. 15/2006 þar sem gildistöku fyrrnefndrar ákvörðunar nr. 4/2006 var frestað til 30. júní 2006.