Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson ehf. á öllu hlutafé í einkahlutafélaginu Sól ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 25/2008
  • Dagsetning: 23/4/2008
  • Fyrirtæki:
    • Sól ehf
    • Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi dags, 6. desember 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson ehf. á öllu hlutafé í einkahlutafélaginu Sól ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar með eru veltuskilyrði ákvæðisins uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.