Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Frumherja hf., og Aðalskoðunar hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 23/2007
  • Dagsetning: 22/5/2007
  • Fyrirtæki:
    • Frumherji hf.
    • Aðalskoðun hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
    • Ýmis þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Í janúar sl. keypti Frumherji hf. allt hlutafé Aðalskoðunar hf. Í því felst samruni félaganna tveggja í skilningi samkeppnislaga. Félögin eru hin einu sem starfa á markaðnum fyrir skoðun skráningarskyldra ökutækja og markaðnum fyrir skoðun á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti vinnsluleyfishafa í sjávarútvegi. Sameiginlega eru fyrirtækin því í einokunarstöðu á umræddum mörkuðum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að samruni félaganna hindri virka samkeppni á þessum mörkuðum og vinni þannig gegn markmiði samkeppnislaga.  Af þeim sökum hefur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna félaganna með vísan til heimildar 17. gr. samkeppnislaga.

Tengt efni