Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup BNT ehf. á helmingshlut í Bevís ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 22/2008
  • Dagsetning: 17/4/2008
  • Fyrirtæki:
    • BNT ehf.
    • Ingvar Helgason
    • Bevís
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi, dags. 8. febrúar sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup  BNT hf. á helmingshlut í Bevís ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessar er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.