Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Álit

Samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði - Álit til Flutningsjöfnunarsjóðs

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 4/2017
  • Dagsetning: 4/4/2017
  • Fyrirtæki:
    • Flutningsjöfnunarsjóður
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Olíuvörur og gas
  • Málefni:

    Engin málefni finnast

  • Reifun

    Í álitinu er því beint til Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara að hann miðli ekki upplýsingum til keppinauta á eldsneytismarkaði, sem til þess eru fallnar að skaða samkeppni.

    Að mati Samkeppniseftirlitsins hefur upplýsingamiðlun Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara skaðleg áhrif á samkeppni. Upplýsingamiðlunin felst m.a. í því að sjóðurinn safnar og miðlar til keppinauta á eldsneytismarkaðnum upplýsingum um heildarsölu allra olíufélaganna sem m.a. nýtast félögunum til þess að áætla hlutdeild sína. Eru þessar upplýsingar veittar mánaðarlega. Að mati Samkeppniseftirlitsins er upplýsingamiðlun af þessu tagi ótvírætt skaðleg samkeppni, þegar horft er til þess að eldsneytismarkaðurinn ber ýmis fákeppniseinkenni.

    Þetta álit er eitt af fjórum álitum sem birt eru í tengslum við markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðnum þar tilmælum er beint til opinberra aðila um að stuðla að bættum samkeppnisaðstæðum á eldsneytismarkaðnum.