Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Úrskurðir áfrýjunarnefndar

Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli ehf., gegn Samkeppniseftirlitinu

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 3/2006
  • Dagsetning: 7/7/2006
  • Fyrirtæki:
    • Samkeppniseftirlitið
    • Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Flugþjónusta
  • Málefni:

    Engin málefni finnast

  • Reifun

    Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 9/2006, þar sem Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS), dótturfélag FL Group, hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Fyrirtækið braut gegn bannreglum samkeppnislaga þegar það gerði 10 einkakaupasamninga við flugfélög sem lenda á Keflavíkurflugvelli og með því að gera flugfélaginu LTU samkeppnishamlandi tilboð. Samkeppniseftirlitið hafði gert fyrirtækinu að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt en áfrýjunarnefndin lækkaði þá upphæð í 60 milljónir króna.