7.7.2006

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála úrskurðar Samkeppniseftirlitinu í hag

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 9/2006, þar sem Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS) var sektuð fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína.

Með úrskurði sínum, nr. 3/2006, dags. 5. júlí 2006, staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS) hefði brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga, um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Áfrýjunarnefnd ákvað að IGS skyldi greiða kr. 60.000.000 í stjórnvaldssekt.

Í hinni áfrýjuðu ákvörðun komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS), dótturfélag FL Group, hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Fyrirtækið braut samkeppnislög þegar það gerði 10 einkakaupasamninga við flugfélög sem lenda á Keflavíkurflugvelli og með því að gera flugfélaginu LTU samkeppnishamlandi tilboð. Samkeppniseftirlitið gerði fyrirtækinu að greiða 80 milljóna króna stjórnvaldssekt til ríkissjóðs.

Eins og áður sagði staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, en ákvað stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 60.000.000.