17.10.2014

Ósk um opinbera rannsókn á miðlun trúnaðarupplýsinga

Samkeppniseftirlitið hefur í dag beint erindi til ríkissaksóknara þar sem farið er fram á opinbera rannsókn á því hvaðan og hvernig trúnaðarupplýsingum um efni kæru Samkeppniseftirlitsins til embættis sérstaks saksóknara hafi verið miðlað til óviðkomandi aðila. Um er að ræða kæru um ætluð brot tiltekinna starfsmanna tveggja fyrirtækja á samkeppnislögum. Er þetta gert í tilefni af umfjöllun Kastljóss um málið nú í vikunni. 

Samkeppniseftirlitið lítur framangreinda miðlun upplýsinga mjög alvarlegum augum. Hefur ríkissaksóknara verið greint frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til innan Samkeppniseftirlitsins til þess að ganga úr skugga um hvort upplýsingarnar hafi borist þaðan og jafnframt auðvelda rannsókn málsins.