29.8.2008

Dagsektir vegna vanrækslu Byrs sparisjóðs á afhendingu upplýsinga

byr_rgb_merkiVegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á samruna SPRON og Kaupþings var óskað eftir margvíslegum upplýsingum frá ýmsum aðilum m.a. Byr sparisjóð. Upplýsingarnar bárust ekki Samkeppniseftirlitinu þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Taldi Samkeppniseftirlitið því nauðsynlegt að leggja dagsektir á Byr sparisjóð þar til gögnin bærust.

Ákvörðun nr. 48/2008.