7.1.2009

Fréttatilkynning - Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Teymi, Vodafone og Tali

tal_teymi_vodafoneÍ tilefni af fjölmiðlaumfjöllun um aðgerðir í dag vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram:

Samkeppniseftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleitir á skrifstofum Teymis hf., Vodafone – Og fjarskipta ehf. og Tals – IP-fjarskipta ehf. Til húsleitanna var aflað úrskurða frá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Húsleitirnar eru liður í rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðum brotum þessara fyrirtækja á  ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008. Í þeirri ákvörðun var mælt fyrir um skilyrði fyrir samruna Hive og Sko, sem nú starfa undir merkjum Tals. Þau skilyrði miðuðu að því að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals og að full og óskoruð samkeppni ríki á milli m.a. Tals og Vodafone, sem er í eigu Teymis hf. Jafnframt lítur rannsóknin að ætluðum brotum fyrirtækjanna á banni samkeppnislaga við samkeppnishamlandi samráði.

Rannsóknin er grundvölluð á upplýsingum og gögnum sem Samkeppniseftirlitið hefur aflað á síðustu vikum.
Samkeppniseftirlitið mun flýta rannsókn þessari eftir því sem kostur er. Á þessu stigi gefur Samkeppniseftirlitið ekki frekari upplýsingar um rannsóknina.