Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. Null

Merger control and the regions

20 June 2019

Undanfarin misseri hefur Samkeppniseftirlitið rannsakað samruna á smásölumörkuðum sem eiga það sameiginlegt að hafa meðal annars haft áhrif utan Reykjavíkur. Í fyrsta lagi var um að ræða fyrirhuguð kaup Haga á Lyfju sem voru ógilt. Í öðru lagi kaup N1 á Festi sem voru samþykkt með skilyrðum. Í þriðja lagi kaup Haga á Olís sem einnig voru samþykkt með skilyrðum. Í fjórða lagi fyrirhuguð kaup Lyfja og heilsu á eina keppinaut sínum í Mosfellsbæ sem voru ógilt. Í fimmta lagi kaup Samkaupa á Iceland-verslunum á höfuðborgarsvæðinu sem voru samþykkt án skilyrða og fyrirhuguð kaup Samkaupa á Iceland-verslunum á Suðurnesjum og Akureyri sem voru ógilt.

Í tengslum við þessar rannsóknir hefur Samkeppniseftirlitið meðal annars verið gagnrýnt fyrir að grípa inn í vegna áhrifa samrunanna á afmörkuðum landfræðilegum mörkuðum og í sumum tilvikum gagnvart fyrirtækjum sem eru ekki markaðsráðandi. Gagnrýnin gefur tilefni til að útskýra með hvaða hætti samkeppnisyfirvöld nálgast þessi atriði.

Markaðir oft staðbundnir

Við rannsókn á samrunum smásala horfir Samkeppniseftirlitið til þess á hvaða landfræðilega markaði, eða mörkuðum, þeir starfa. Er meðal annars lagt á það mat hvað neytendur eru tilbúnir að eyða miklum tíma í ferðalög milli verslana og hvort netverslanir séu raunhæfur valkostur. Við blasir að dagvöruverslanir á Vesturlandi veita til að mynda dagvöruverslunum á Austurlandi afar takmarkað samkeppnislegt aðhald. Hið sama á við um apótek, veitingastaði, bakarí, fiskbúðir o.s.frv. Af því má ráða að smásölumarkaðir eru oft á tíðum, eðli síns vegna, afmarkaðir við tiltekin landsvæði.

Fyrrgreindir samrunar hafa þannig verið taldir raska samkeppni í smásölu dagvöru á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Akureyri og í smásölu lyfja í Mosfellsbæ. Í öllum þessum málum lágu til grundvallar ítarlegar greiningar á staðgöngu milli keppinauta, mismunandi tegunda verslana og svæða.

Þetta er í takt við nálgun annarra samkeppnisyfirvalda. Framkvæmdastjórn ESB og bandarísk samkeppnisyfirvöld hafa almennt lagt til grundvallar að smásala lyfja afmarkist við mjög takmörkuð svæði sem samsvari 1,5 til 4 kílómetra radíus frá staðsetningu lyfjabúða. Í nýrri ákvörðun breskra samkeppnisyfirvalda vegna fyrirhugaðs samruna Asda og Sainsbury’s var við afmörkun á landfræðilega markaðnum horft til verslana í allt að 15 mínútna aksturstíma frá verslunum samrunaaðila.

Stærðin hefur ekki úrslitaáhrif

Við rannsókn á samrunum horfir Samkeppniseftirlitið ekki eingöngu til stærðar viðkomandi fyrirtækja á landsvísu heldur skipta þar höfuðmáli samkeppnisleg áhrif samrunans á viðkomandi markaði. Fyrirtæki getur verið lítið á landsvísu en mjög sterkt á einstökum svæðum. Í þeim tilvikum er horft til áhrifa samrunans á samkeppni annars vegar á landsvísu og hins vegar á tilteknum landsvæðum sem mynda sérstaka landfræðilega markaði.

Samruni Sainsbury’s og Asda var ógiltur af breskum samkeppnisyfirvöldum. Í því máli var samanlögð hlutdeild fyrirtækjanna í dagvörusölu um 29%. Þrátt fyrir það var samruninn talinn raska samkeppni á 537 landfræðilega afmörkuðum svæðum Í Bretlandi. Í tilviki kaupa Samkaupa á 14 verslunum af Baskó var samanlögð hlutdeild fyrirtækjanna á landsvísu á bilinu 20 til 25 prósent. Samruninn var talinn raska samkeppni á Akureyri og í Reykjanesbæ, þar sem tvær af fyrrgreindum 14 verslunum voru staðsettar, en ekki á höfuðborgarsvæðinu.

Röskun líklegri úti á landi

Ljóst er að samrunar á smásölumörkuðum geta haft áhrif á samkeppni þrátt fyrir að fáir íbúar búi á viðkomandi svæði og viðkomandi fyrirtæki séu ekki markaðsráðandi. Raunar er líklegra að samkeppnisleg vandamál komi upp á smásölumörkuðum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er sú að á landsbyggðinni starfa að öllu jöfnu færri aðilar á samþjappaðri mörkuðum. Horfi samkeppnisyfirvöld fram hjá samrunum sem raska samkeppni á fámennari stöðum mun það leiða til þess að þau svæði verða ósamkeppnishæf vegna hærra verðs en ella, minni gæða og verri þjónustu. Slík stefna samkeppnisyfirvalda væri óásættanleg og myndi skaða neytendur í dreifðari byggðum landsins.

The author is Valur Þráinsson, Chief Economist at the Competition Authority.

Other news

All news and published material

Annual Report 2021

Null

  • 23 July 2025
  • Null

Managers' perception

Text

  • 23 July 2025
  • Null

ICA's investigation into Eimskip's collusion violations concluded with a settlement.

The Icelandic Competition Authority (ICA) has been investigating possible infringements of Article 10 of the Icelandic Competition Law and Article 53 ...
  • 23 July 2025
  • Null

Competitiveness Indicators – An International Comparison

Null

  • 23 July 2025
  • Null

Merger of Norðlenska matborðið ehf., Kjarnafæði hf. and SAH afurðir ehf.

The Icelandic Competition Authority examined the merger of Norðlenska, Kjarnafæði and SAH afurðir. It was the Authority's assessment that the merger c...
  • 23 July 2025
  • Null

Competition after the pandemic

Offence is the best defence – protectionism harms business and the public

  • 23 July 2025
  • Null

Cooperation or competition? The development of telecommunications infrastructure. This publication contains the Competition Authority's memorandum on cooperation between competitors in the development of telecommunications infrastructure, dated 18 February 2020.

Null

  • 23 July 2025
  • Null

The Competition Authority's report on RÚV in the advertising market

Null

  • 23 July 2025
  • Null

ICA thesis competition

that's all

  • 23 July 2025
  • Null
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.