Logo Competition

Erindi Apótekarafélags Íslands um fjárhagslegan aðskilnað sjúkrahússapóteka -sjúkrahússapótek Landspítala-

Analysis

Samkeppnisráð mælti fyrir um að
fjárhagslegur aðskilnaður færi fram milli
sjúkrahússapóteks Landspítalans og
annars reksturs spítalans með eftirfarandi hætti eigi síðar en 1. júlí 1996:

„1. Starfsemi sjúkrahússapóteks verði í sérstakri
einingu innan sjúkrahússins. Reikningshald apóteks skal vera sjálfstætt og
reikningsskil gerð í samræmi við meginreglur laga um ársreikninga.
Reikningsskil sjúkrahússapóteks skulu liggja fyrir opinberlega með sambærilegum
hætti og almennt gerist.

2. Þegar fjárhagslegur aðskilnaður á sér stað skal
gera stofnefnahagsreikning. Þær eignir sem sjúkrahúsið leggur apótekinu til
skulu yfirfærðar á markaðsverði ef þess er kostur, annars á endurkaupsverði að
less any reasonable allowances.

3. Skuldir sjúkrahússapóteks við Landspítala skulu
bera markaðsvexti en óheimilt er að apótek skuldi sjúkrahúsinu annað en lán
vegna yfirtöku eigna í upphafi svo og lán vegna eðlilegra viðskipta.

4. Ef sjúkrahússapótek nýtir sér yfirstjórn,
stoðdeildir, fasteignir, tölvuvinnslu eða annað sameiginlega með sjúkrahúsinu
skal greiða fyrir það eins og um viðskipti milli óskyldra aðila væri að ræða.
Ef markaðsverð liggur ekki fyrir skal miða við kostnaðarverð að viðbættri
hæfilegri álagningu.“

Decisions
Case number

1 / 1996

Date
16. February 1996
Company

Pharmacists' Association of Iceland

Industries

Medicines, aids (e.g. glasses) and related products

Consumer goods, operating supplies, etc.

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.