Logo Competition

Internetsþjónusta Pósts og síma

Analysis

Eftirfarandi fyrirmælum samkeppnisráðs var beint til Pósts og síma:

Til viðbótar þeim fjárhagslega
aðskilnaði sem þegar hefur farið fram á milli samkeppnissviðs Pósts og síma hf.
og annarra sviða fyrirtækisins skal samkeppnissvið frá 1. janúar 1997 færa til
gjalda og greiða markaðsvexti, samkvæmt mati löggilts endurskoðanda, af
stofnframlagi einkaréttar sem er að upphæð 1.315.388.204 kr. Skuldir
samkeppnissviðs Pósts og síma hf. við önnur svið fyrirtækisins skulu bera
markaðsvexti.

2. Samkeppnissviði Pósts og
síma hf. skal óheimilt frá gildistöku þessarar ákvörðunar að nota tekjur af
rekstri GSM- og NMT- fjarskiptakerfanna til að greiða niður kostnað við
þjónustu eða aðra starfsemi sem rekin er í virkri samkeppni við aðra aðila.

3. Keppinautar samkeppnissviðs
Pósts og síma hf. skulu, komi um það ósk frá keppinaut, njóta sambærilegra
viðskiptakjara og samkeppnissvið Pósts og síma hf. nýtur og sambærilegs aðgangs
að búnaði og hvers konar tæknilegri aðstöðu sem tengist einkaréttarþjónustu
Pósts og síma hf. Mismunur á kjörum í viðskiptum við einkaréttarsviðið verður
að byggjast á hlutlægum og málefnalegum ástæðum, s.s. mismunandi
kostnaði vegna
umfangs viðskiptanna. Öll frávik varðandi aðgang að aðstöðu og búnaði verða að
byggjast á hlutlægum og málefnalegum sjónarmiðum, s.s. sannanlegum tæknilegum
ómöguleika.“
 

Decisions
Case number

11 / 1997

Date
7. May 1997
Company

Póstur og sími hf

Industries

Telecommunications, information technology and media

Other related telecommunications services

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.