Logo Competition

Endurskoðun skilyrða samkvæmt ákvörðun samkeppnisráðs nr. 39/2003, sbr. ákvörðun nr. 23/2002, sem takmarka beinar markaðsaðgerðir Landssíma Íslands hf. gagnvart viðskiptavinum Dagsbrúnar hf. (Vodafone)

Analysis

Um forsögu máls þessa vísast til ákvarðana samkeppnisráðs nr. 39/2003 and nr. 23/2002, þar sem Landssíma Íslands hf. voru sett skilyrði um að fyrirtækið myndi ekki beita markaðsaðgerðum, sem hefðu það að markmiði að beina einstökum viðskiptavinum keppinauta fyrirtækisins á einstaklingsmarkaði fyrir talsímaþjónustu aftur í viðskipti við fyrirtækið. Í málinu tók Samkeppniseftirlitið m.a. til skoðunar hvort þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í fyrri ákvörðunum samkeppnisráðs hefðu breyst. Var það mat Samkeppniseftirlitsins að aðstæður á íslenskum fjarskiptamarkaði hefðu breyst frá töku ákvarðana nr. 39/2003, sbr. ákvörðun nr. 23/2002 , en í því sambandi var t.d. vísað til þess að staða keppinauta Landssímans hefði styrkst. Hins vegar taldi Samkeppniseftirlitið að markaðshlutdeild Landssímans á talsímamarkaði bæri vott um yfirburðastöðu á þeim markaði og var í því sambandi vísað til þess að það væri sá markaður sem á reyndi í málinu og skilyrði ákvörðunar nr. 39/2003, sbr. ákvörðun nr. 23/2002, lytu að. Var niðurstaða málsins sú að vegna þeirrar stöðu sem Landssíminn nyti á markaði fyrir talsímaþjónustu væru ekki forsendur til að fella niður skilyrði um takmarkanir Landsímans um beinar markaðsaðgerðir, sbr. ákvarðanir samkeppnisráðs nr. 39/2003 and nr. 23/2002.

Decisions
Case number

11 / 2006

Date
31. March 2006
Company

Dagsbrún hf. (Og Vodafone ehf.)

Landssími Íslands ehf.

Industries

Telecommunications, information technology and media

Subjects

Market dominance

Illegal collusion

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.