Logo Competition

Purchase of BK Eignar ehf. by Almenna Leigufélagið ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar yfirtöku Almenna leigufélagsins á BK eignum ehf. Starfsemi þessara fyrirtækja felst í fjárfestingum og útleigu á íbúðum á almennum leigumarkaði. Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki séu forsendur til íhlutunar í samrunann á grundvelli samrunaákvæða samkeppnislaga. Eftirlitið hefur birt ákvörðun þessa efnis í dag, nr. 12/2017 Purchase of BK Eignar ehf. by Almenna Leigufélagið ehf.  

Rekstraraðili hins sameinaða félags er fjármálafyrirtækið Gamma og er félagið stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu með rösklega 1.000 íbúðir í eignasafni sínu. Ennfremur á fyrirtækið nokkurn fjölda íbúða á landsbyggðinni, einkum á Suðurnesjum.  Ætla má að félagið fari með um 5-10% íbúðarhúsnæðis í almennri leigu á höfuðborgarsvæðinu og milli 10-15% á Suðurnesjum, þ.e. ef leiguíbúðir í eigu einstaklinga og minni aðila eru taldar með.  

Þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu telur Samkeppniseftirlitið rétt að vekja athygli á auknu vægi sérhæfðra leigufélaga á markaði fyrir útleigu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Í ákvörðuninni er leitt að því líkum að fasteignafélög eigi allt að 40% íbúðarhúsnæðis í almennri útleigu á höfuðborgarsvæðinu, en aðrar eignir eru í eigu einstaklinga og minni leigufélaga.  Á Suðurnesjum eiga fasteignafélög á milli 70-80% íbúðarhúsnæðis í almennri leigu, á móti 20-30% sem er í eigu einstaklinga og minni aðila.  

Að mati Samkeppniseftirlitsins er full ástæða þess að gefa þessari þróun sérstakan gaum. Þótt líklegt sé að lítið framboð á leiguhúsnæði og stóraukin eftirspurn ráði miklu um hækkandi fasteigna- og leiguverð nú um stundir, getur aukin samþjöppun á markaðnum leitt til minnkandi samkeppni til lengri tíma, leigutökum til tjóns. 

Í ákvörðuninni er tekið fram að frekari samþjöppun í þessari atvinnustarfsemi muni að líkindum kalla á ítarlegar rannsóknir af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Full ástæða er hins vegar til þess fyrir önnur stjórnvöld sem að þessu koma að meta stöðuna og huga að stjórntækjum á sínum vettvangi.

Decisions
Case number

12 / 2017

Date
28. March 2017
Company

Almenna Leigufélagið ehf.

BK eignir ehf.

Industries

Estate agent

Specialist services and other services

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.